Geiri Péturs jólaljósum prýddur

1872. Geiri Péturs ÞH 344 ex Skúmur ÍS 322. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geiri Péturs, sá þriðji í röðinni, liggur hér við bryggju á Húsavík prýddur jólaljósum og aftan við hann glittir í Guðrúnu Björgu ÞH 60 og Kristey ÞH 25. Um Geira Péturs, sem upphaflega hét Skúmur GK 22, má lesa hér. Með því að … Halda áfram að lesa Geiri Péturs jólaljósum prýddur

Gnúpur seldur til Rússlands

1579. Gnúpur GK 11 ex Guðbjörg ÍS 460. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Frystitogarinn Gnúpur lagði úr höfn í Grindavík um hádegisbil í dag, að öllum líkindum í síðasta sinn en hann hefur verið seldur til Rússlands. Fyrst siglir Gnúpur til Hafnarfjarðar þar sem hann verður tekinn í slipp áður en hann fer utan. Gnúpur sem … Halda áfram að lesa Gnúpur seldur til Rússlands

Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir

2165. Baldvin Þorsteinsson EA 10 - 2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Þessi mynd var tekin sunnudag einn í byrjun septembermánaðar árið 2000 þegar fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA 11 kom til heimahafnar í fyrsta sinn. Frystitogarinn Baldvin Þorsteinsson EA 10 tók á móti honum og saman sigldu þeir um pollinn en Baldvin … Halda áfram að lesa Baldvin og Vilhelm Þorsteinssynir

Guðmunda Torfadóttir VE 80

2191. Guðmunda Torfadóttir VE 80 ex Olympe. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Guðmunda Torfadóttir VE 80 var smíðuð árið 1989 (afhentur í febrúar) fyrir Norðmenn hjá Slipen Mek- Verksted A/S, Sandnessöen í Noregi. Togarinn, sem upphaflega hét Stamsund, smíðanúmer 48 hjá stöðinni. Vinnslustöðin í vestmannaeyjum keypti skipið frá Frakklandi árið 1993 en þar bar það nafnið Olympe. … Halda áfram að lesa Guðmunda Torfadóttir VE 80

Bergey VE 544

1478. Bergey VE 544. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Skuttogarinn Bergey VE 544 hét upphaflega Lárus Sveinsson SH 126 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur notaður til landsins árið 1978. Hann hét áður President Arthur Brien og var keyptur frá Frakklandi en hann var smíðaður þar í landi árið 1974. Það voru fyrirtækin Hraðfrystihús Ólafsvíkur hf. … Halda áfram að lesa Bergey VE 544

Þórunn Sveinsdóttir VE 401

2401. Þórunn Sveinsdóttir VE 401. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir í gær þegar skuttogarinn Þórunn Sveinsdóttir VE 401 lét úr höfn í Vestmannaeyjum. Þórunn Sveinsdóttir VE 401 var smíðuð fyri Ós ehf. í Vestmannaeyjum í Karstensens Skibsværft A/S í Skagen árið 2010. Hún var lengd í fyrra um 6,6 metra í … Halda áfram að lesa Þórunn Sveinsdóttir VE 401