Klara Sveinsdóttir SU 50

1638. Klara Sveinsdóttir SU 50 ex Drangavík ST 71. Ljósmynd Börkur Kjartansson. Hér gefur að líta togskipið Klöru Sveinsdóttur SU 50 við bryggju á Fáskrúðsfirði en þaðan var hún gerð út um nokkura ára skeið. Útgerð Akkur hf. á Fáskrúðsfirði. Klara Sveinsdóttir sem var 292 tonn var smíðuð í Noregi 1978 og keypt notuð til … Halda áfram að lesa Klara Sveinsdóttir SU 50 →

Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þegar Jóhanna Gísladóttir GK 357 var á siglingu til nýrrar heimahafnar í vikunni lá Jón Steinar fyrir henni og sendi drónann út þegar hún var að sigla í gegnum Reykjanesröstina. Og að sjálfsögðu var tekin hringur fyrir kappann og hér sjáum … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir í Reykjanesröstinni →

Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Nýtt skip bættist í flota Vísis hf. síðdegis í dag þegar skuttogarinn Jóhanna Gísladóttir GK 357 kom til heimahafnar í Grindavík. Vísir keypti togarann frá Vestmannaeyjum í sumar þar sem hann bar nafnið Bergur VE 44. Togarinn, sem hét upphaflega Westro, … Halda áfram að lesa Ný Jóhanna Gísladóttir kom til heimahafnar í dag →

Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd af Jóhönnu Gísladóttur GK 357 var tekin í gær þar sem skipið liggur við bryggju í Reykjavíkurhöfn. Eins og komið hefur fram á síðunni keypti Vísir hf. skipið frá Vestmannaeyjum og mun það koma í stað línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur GK … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357 við bryggju í Reykjavík →

Bylgja VE 75

2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Togskipið Bylgja VE 75 kom til Reykjavíkur síðdegis í gær og voru þessar myndir teknar þá. Svona nýmáluð og fín. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75 →

Bergur verður Jóhanna Gísladóttir

2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Bergur VE 44 hefur fengið grænan lit Vísisbátanna og nafnið Jóhanna Gísladóttir GK 357. Eins og komið hefur fram á síðunni keypti Vísir hf. skipið frá Vestmannaeyjum og mun hann koma í stað línuskipsins Jóhönnu Gísladóttur. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Bergur verður Jóhanna Gísladóttir →

Höfrungur III seldur til Rússlands

1902. Höfrungur III AK 250 ex Polarborg II. Ljósmynd Þór Jónsson 2020. Brim hefur selt skuttogarann Höfrung III AK 250 til Rússland og verður skipið afhent nýjum eiganda í næsta mánuði. Höfrungur III AK 250 kom til landsins í febrúar 1992 en hann hét áður Polarborg II og var keyptur notaður frá Færeyjum. Kaupandi Haraldur … Halda áfram að lesa Höfrungur III seldur til Rússlands →

Berglín heldur til veiða

1905. Berglín GK 300 ex Jöfur ÍS 172. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Rækjutogarinn Berglín GK 300 landaði á Siglufirði í dag og voru þessar myndir teknar þegar hún lét aftur úr höfn undir kvöld. Berglín GK 300, sem er í eigu Nesfisks hf. í Garði, var smíðuð í skipasmíðastöðinni Stálvík í Garðabæ og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Berglín heldur til veiða →

Harðbakur á útleið frá Grindavík

2963. Harðbakur EA 3. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessar myndir af Harðbak EA 3 þar sem hann var á útleið frá Grindavík síðdegis í dag. Harðbakur hafði komið til hafnar í morgun vegna bilerís og landaði 26 tonnum en togarinn hafði nýhafið veiðiferð þegar bilunin kom upp. 2963. Harðbakur EA 3. … Halda áfram að lesa Harðbakur á útleið frá Grindavík →

Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði

1326. Stálvík SI 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Stálvík SI 1 er hér við bryggju á Siglufirði, sennilega vorið eða sumarið 1989. Stálvík var fyrsti skuttogarinn sem smíðaður var á Íslandi og fór smíðin fram árið 1973 í Stálvík hf. í Garðabæ. Togarinn var smíðaður fyrir Þormóð ramma hf. á Siglufirði og var 314 brl. … Halda áfram að lesa Stálvík SI 1 við bryggju á Siglufirði →