Margrét HF 149

2428. Margrét HF 149 ex Anna Guðjóns ÍS 199 kemur að landi í Hafnarfirði. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Margrét HF 149 var smíðuð í Bátastöðinni Knörr á Akranesi árið 2000. Hún hét upphaflega Anna Guðjóns ÍS 199 og var í eigu Stekkjaness sf. í Bolungarvík. Árið 2005 var báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann … Halda áfram að lesa Margrét HF 149

Þrír á skaki og einn á netum

Þrír á skaki og einn á netum. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd Hreiðars Olgeirssonar frá því um 1990 má sjá þrjá Sómabáta á skaki og í fjarska netabátinn Þorstein GK 15. Myndir er að ég tel tekin á Þistilfirði, við Langanesið, en á henni eru Þórshafnarbátarnir Latur ÞH 359 og Helgi ÞH 123 (fjær) … Halda áfram að lesa Þrír á skaki og einn á netum

Búi EA 100

1380. Búi EA 100 ex Fjalar ÍS 54. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Búi EA 100 hét upphaflega Fjarðará KE 23 og var smíðaður árð 1971 í Skipa­smíða­stöð Nóa Kristjáns­sonar á Akureyri. Á vef Árna Björns Árnasonar, aba.is segir: Smíðaður fyrir Sigurbjörn Sigurjónsson, Keflavík, sem átti bátinn í tvö ár. Samkvæmt ritinu "Íslensk skip" þá var báturinn dekkaður þriggja … Halda áfram að lesa Búi EA 100

Sigurvon RE 11

2161. Sigurvon RE 11 ex Sigurvon ÍS 260. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2020. Jón Steinar tók þessar myndir af handfærabátnum Sigurvon RE 11 koma til hafnar í Grindavík í gær. Báturinn hét upphaflega Hallvarður á Horni GK 111 og var smíðaður 1992 hjá Mótun í Hafnarfirði fyrir Hafstein Sæmundsson útgerðarmann í Grindavík. Hefur í gegnum … Halda áfram að lesa Sigurvon RE 11