Eiður Baldur EA 69

7050. Eiður Baldur EA 69 ex Raffi GK 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Eiður Baldur EA 69 hefur róið frá Húsavík þessa fyrstu daga strandveiðitímabilsins sem hófst þann 2. maí sl. og voru þessar myndir teknar í dag. Eiður Baldur var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1988 og hét upphaflega Gylfi KÓ 9. Hann … Halda áfram að lesa Eiður Baldur EA 69 →

Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík

2704. Bíldsey SH 65 ex Bíldsey II SH 63. Ljósmynd  Jón Steinar 2021. Bíldsey SH 65 kemur hér á landleið til Grindavíkur í gær en upphaflega hét báturinn Konni Júl GK 704. Hann var smíðaður hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Eigandi Hviða ehf. og heimahöfnin Garður.  Árið 2008 fékk báturinn nafnið Kiddi Lár GK … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík →

Svala Dís KE 29

1666. Svala Dís KE 29 ex Gullfaxi II GK 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Grásleppubáturinn Svala Dís KE 29 kemur hér að landi í Sandgerði fyrir skömmu en báturinn er gerður út af FREYR-freshfish ehf. og heimhöfn hans Keflavík. Báturinn var smíðaður árið 1983 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Upphaflega hét báturinn Stakkur RE … Halda áfram að lesa Svala Dís KE 29 →

Hafborg NS 48

7015. Hafborg NS 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafborg NS 48 var smíðuð í bátasmiðjunni Mótun árið 1987 fyrir Vopnfirðingana Guðna Þ. Sigurðsson og Einar Guðnason. Hafborgin, sem sést á myndinni koma til hafnar í Sandgerði um árið, var Gáski 1000. Hún var tæpar 10 brl. að stærð og búin 271 hestafla Mermaidvél. Hafborg var seld … Halda áfram að lesa Hafborg NS 48 →

Jón Ásbjörnsson RE 777

2755. Jón Ásbjörnsson RE 777 ex Ragnar SF 550. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2021. Sigurður Davíðsson tók þessa mynd í dag af línubátnum Jóni Ásbjörnssyni RE 777 koma til hafnar í Þorlákshöfn. Jón Ásbjörnsson RE 777 var smíðaður í Bátagerðinni Samtak árið 2008 og er af gerðinni Víkingur 1200. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Vigur ehf. … Halda áfram að lesa Jón Ásbjörnsson RE 777 →