1475. Sæborg og 993. Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd sem tekin var nú undir kvöld sýnir tvo hvalaskoðunarbáta Norðursiglingar ljósum prýdda í Húsavíkurslipp. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher resolution
Flokkur: Bátar
Sjöstjarnan VE 92
601. Sjöstjarnan VE 92 ex Dröfn RE 135. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sjöstjarnan VE 92 hét upphaflega Ingiber Ólafsson GK 35 og var báturinn smíðaður árið 1961 í Skipasmíðastöð Marsellíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði. Báturinn sem var 83 brl. að stærð var smíðaður fyrir Jón og Óskar Ingiberssyni í Keflavík og bar hann nafn föður þeirra. … Halda áfram að lesa Sjöstjarnan VE 92
Þórsnes SH 109
967. Þórsnes SH 109 ex Marta Ágústsdóttir GK 14. Ljósmynd Vigfús Markússon. Á þessari mynd úr safni Vigfúsar Markússonar gefur að líta Þórsnes SH 109 draga netin. Upphaflega hét Þórsnesið Keflvíkingur KE 100 og var smíðað árið 1964 í Boizenburg í A-Þýskalandi. Þórsnes fór í brotajárn árið 2017, nánar tiltekið til Ghent í Belgíu. Með því að … Halda áfram að lesa Þórsnes SH 109
Bárður SH 81
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það eru aldrei of margar myndir af aflaskipinu Bárði SH 81 og hér koma nokkrar sem teknar voru 19.ágúst sl. þegar báturinn kom að landi á Húsavík. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður … Halda áfram að lesa Bárður SH 81
Ásbjörg ST 9
1487. Ásbjörg ST 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ásbjörg ST 9 var síðasti eikarbáturinn af þessari stærð sem Skipavík í Stykkilshólmi smíðaði. Hún var afhent árið 1977 og átti heimahöfn á Hólmavík. Í 15. tbl. Ægis 1977 sagði m.a: 1. júlí sl. afhenti Skipasmíðastöðin Skipavík h.f. í Stykkishólmi nýtt 47 rúmlesta eikarfiskiskip, sem er nýsmíði nr. … Halda áfram að lesa Ásbjörg ST 9
Auðbjörg HU 6
656. Auðbjörg HU 6 ex Hinrik HU 8. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Auðbjörg HU 6 liggur hér við bryggju á Skagaströnd um árið en þaðan var báturinn gerður út um áratuga skeið. Ítarlega er sagt frá bátnum á vefnum aba.is en hann var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1960. Hann var 23 brl. að stærð … Halda áfram að lesa Auðbjörg HU 6
Ginneton kom til Eyja í dag
IMO 9350628. Ginneton GG 203 ex Ceton. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Nýtt uppsjávarskip í flota Ísfélags Vestmannaeyja, Ginneton GG 203, kom til Vestmannaeyja um hádegisbil í dag Á Fésbókarsíðu Ísfélagsins segir að strax verði hafist handa við að læra á skipið og skrá það í íslenska skipaskrá. Skipið fær nafnið Suðurey VE 11 með skipaskrárnúmer … Halda áfram að lesa Ginneton kom til Eyja í dag
Gunnar SU 139
73. Gunnar SU 139. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Gunnar SU 139 var einn tappatogaranna sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga í A-Þýskalandi á árunum 1958-1959, nánar tiltekið í Stralsund. Í Tímanum 14. júní 1959 sagði svo frá komu Gunnars SU 139: Snemma í morgun lagðist vélskipið "Gunnar" SU-139 að bryggju á Reyðarfirði. Var skipið allt fánum … Halda áfram að lesa Gunnar SU 139
Jóhanna ÁR 206
1043. Jóhanna ÁR 206 ex Akurey SF 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Jóhanna ÁR 206 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 2005. Jóhanna ÁR 206, sem fór í brotajárn árið 2019, hét upphaflega Hafdís SU 24 og var með heimahöfn á Breiðdalsvík. Hún var smíðuð árið 1967 fyrir Braga hf. á Breiðdalsvík … Halda áfram að lesa Jóhanna ÁR 206
Straumnes RE 7
973. Straumnes RE 7 ex Sigurður Jakobsson ÞH 320. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Straumnes RE 7 lætur hér úr höfn á Húsavík í júnímánuði árið 2004 en það var á úthafsrækju. Upphaflega Dagfari ÞH 40 sá fyrri, hann kom 1965 og fékk nafnið Ljósfari ÞH 40 þegar sá seinni kom árið 1967. Báðir smíðaðir í … Halda áfram að lesa Straumnes RE 7









