1019. Sigurborg AK 375 ex Freyja RE 38. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurborg Ak 375 frá Akranesi landar hér síld í Grindavík haustið 1985 að mig minnir. Sigurborg AK 375 upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri … Halda áfram að lesa Sigurborg AK 375
Flokkur: Bátar
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessar myndir sem nú birtast teknar í dag þegar Jökull ÞH 299 lét úr höfn á Húsavík áleiðis í slipp á Akureyri. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Boði GK 24
971. Boði GK 24 ex Boði KE 132. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965. Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu báta en … Halda áfram að lesa Boði GK 24
Valþór ÁR 123
1081. Valþór ÁR 123 ex Valþór GK 123. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Jón Steinar tók þessa mynd af Valþóri ÁR 123 milli hátíða en báturinn liggur við bryggju í Grindavík. Valþór var áður GK 123 en fékk ÁR skráninguna um mitt þetta ár. Báturinn hét upphaflega Fagranes ÞH 123 og var smíðaður hjá Vélsmiðju … Halda áfram að lesa Valþór ÁR 123
Kristrún II RE 477
2774. Kristrún II RE 477 ex Kristrún RE 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Kristrún II RE 477 liggur hér við bryggju í Reykjavík prýdd jólaljósum eins og nýja Kristrún sem ég birti mynd af á dögunum. Fiskkaup hf. keypti skipið frá Kanada árið 2008 en þar hét það Appak og var í eigu Norðmanna. Kristrún RE … Halda áfram að lesa Kristrún II RE 477
Mars RE 270
2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línu- og netabáturinn Mars RE 270 liggur hér ljósum prýddur við bryggju í Reykjavík en hann er í eigu Útgerðarfélags Reykjavíkur hf. Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27. Báturinn er 34 … Halda áfram að lesa Mars RE 270
Kristrún RE 177
3017. Kristrún RE 177 ex Argos Froyanes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Nýja Kristrún Fiskkaupa hf. ljósum prýdd í Reykjavíkurhöfn. Skipið er 48,8 metrar að lengd og breidd þess 11,03 metrar. Það mælist 1,335 BT að stærð. Kristrún var smíðuð 2001 í Solstrand AS í Noregi (skrokkurinn í Riga) og hét upphaflega Frøyanes. Skipið hét áður … Halda áfram að lesa Kristrún RE 177
Gleðileg jól – Merry Christmas – Feliz Navidad
1755. Aðalbjörg RE 5 prýdd jólaljósumvið Grandann. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Með þessari mynd sem tekin var í gær við Grandagarð í Reykjavík óska ég öllum þeim sem sækja síðuna heim gleðilegrar jólahátíðar með þökk fyrir innlitið á árinu sem er að líða. Merry Christmas to you all who visit this site with thanks for stopping by. Feliz … Halda áfram að lesa Gleðileg jól – Merry Christmas – Feliz Navidad
Kristrún II, Mars og Kristrún
2774. Kristrún II RE 477, 2986. Mars RE 270. 3017. Kristrún RE 177. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hér gefur að líta þrjá línu- og netabáta í flota Reykvíkinga, allir ljósum prýddir í Reykjavíkurhöfn. Í miðjunni er Mars RE 270 með Kristrúnur til hvorrar handar. Sú eldri er vinstra megin en hún ber nú nafnið Kristrún … Halda áfram að lesa Kristrún II, Mars og Kristrún
Jökull kominn í jólafrí
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Línuskipið Jökull ÞH 299 kom til Húsavíkur í morgun og landaði en það er GPG Seafood ehf. sem á og gerir Jökul út. Heimahöfn hans er Raufarhöfn. Að löndun lokinni var skipið fært inn fyrir við Þvergarðinn enda kallarnir komnir í jólafrí. Jökull var … Halda áfram að lesa Jökull kominn í jólafrí









