Pétur Jacob SH 37

1445. Pétur Jacob SH 37 ex Fanney ÞH 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er Pétur Jacob SH 37 við bryggju á Húsavík um árið að taka olíu fyrir heimsiglinguna til Ólafsvíkur. Finn Gærdbo var þá nýbúinn að kaupa bátinn sem hét áður Fanney ÞH 130 og var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1975. Með … Halda áfram að lesa Pétur Jacob SH 37 →

Tjaldur SH 270 í vari við hótel Grænuhlíð

2158. Tjaldur SH 270. Ljósmynd Vigfús Markússon. Það voru ein átta skip í vari við Hótel Grænuhlíð í gær þegar óveðrið gekk yfir og línsuskipið Tjaldur SH 270 frá Rifi var eitt þeirra. Vigfús Markússon stýrimaður á línuskipinu Rifsnesi SH 44 tók þessa mynd af Tjaldinum undir Grænuhlíðinni. Með því að smella á myndirnar er … Halda áfram að lesa Tjaldur SH 270 í vari við hótel Grænuhlíð →

Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11

103. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 kemur hér að landi í Grindavík um árið en báturinn var smíðaður í Uksteinvik í Noregi árið 1963 hjá skipasmíðastöðinni M. Kleven Mek. Verksted AS.í Ulsteinvík.  Þorbjörn h/f í Grindavík lét smíða skipið og átti það alla tíð uns það strandaði … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson III GK 11 →

MSC Magnifica í höfn í Malaga

IMO 9387085. MSC Magnifica. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Skemmtiferðaskipið MCS Magnifica var í höfn í Malaga þegar við komum til borgarinnar í dag og tók ég þessa mynd úr íbúðinni sem við dveljum í næstu daga. Gaman að geta þess að ég myndaði skipið í La Spezia á Ítalíu fyrir rúmu ári. Skipið sem skráð er … Halda áfram að lesa MSC Magnifica í höfn í Malaga →

Reykjaborg KE 6

2325. Reykjaborg KE 6 ex Reykjaborg RE 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Dragnótabáturinn Reykjaborg KE 6 kemur hér að landi í Keflavík haustið 2005 en upphaflega var báturinn Reykjaborg RE 25. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998 og síðan lengdur um fjóra metra í Ósey í Hafnarfirði árið 2001. Reykjaborg var seld … Halda áfram að lesa Reykjaborg KE 6 →

Sæþór EA 101

1291. Sæþór EA 101 ex Votaberg SU 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér lætur rækjubáturinn Sæþór EA 101 úr höfn á Húsavík sumarið 2005 en hann hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði árið 1973. Jón Helgason ÁR 12 var 120 brl. að stærð smíðaður fyrir … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101 →

Halli Eggerts ÍS 197

1013. Halli Eggerts ÍS 197 ex Sólrún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér má sjá línubátinn Halla Eggerts ÍS 197 frá Flateyri í slipp í Reykjavík árið 2005. Báturinn hét upphaflega Þórkatla II GK 197 og var smíðaður fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða hf. í Noregi árið 1966.  Þórkatla II mældist upphaflega 256 brl. að stærð. … Halda áfram að lesa Halli Eggerts ÍS 197 →

Helga Guðmundsdóttir SH 108

245. Helga Guðmundsdóttir SH 108 ex Helga Guðmundsdóttir BA 77. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1983. Hér siglir Helga Guðmundsdóttir SH 108 um Breiðafjörð á vetrarvertíðinni árið 1983 en báturinn bar þessa skráningu fyrstu 5-6 mánuðina það ár. Um mitt ár 1983 fékk báturinn nafnið Þórsnes SH 108 og var í eigu samnefnds fyrirtækis í Stykkishólmi. Upphaflega … Halda áfram að lesa Helga Guðmundsdóttir SH 108 →