
Dragnótabáturinn Reykjaborg KE 6 kemur hér að landi í Keflavík haustið 2005 en upphaflega var báturinn Reykjaborg RE 25.
Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998 og síðan lengdur um fjóra metra í Ósey í Hafnarfirði árið 2001.
Reykjaborg var seld til Keflavíkur sumarið 2005 og var KE 6 í smátíma en fékk nafnið Geir KE 6 í árslok.
Geir var í eigu Útgerðarfélgsins Óskar ehf. sem einnig gerði út Ósk KE 5. Árið 2008 fær báturinn nafnið Arnþór GK 20 þegar Nesfiskur hf. í Garði keypti hann. agustson hf. í Stykkishólmi keypti bátinn árið 2017 og nefndi hann Leynir SH 120.
Árið 2023 fékk báturinn nafnið Leynir ÍS 16 með heimahöfn á Flateyri og sl. vor var Leynir ÍS 903 í nookkrar vikur áður en hann fékk nafnið Austfirðingur HU 204 með heimahöfn á Hvammstanga.
Báturinn er 21,88 metrar að lengd og mælist 72 brl./107 BT að stærð. Hann er búinn 470 hestafla Cummins frá árinu 1998.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution