Austfirðingur HU 204

2325. Austfirðingur HU 204 ex Leynir ÍS 903. Ljósmynd Vigfús Markússon 2026. Dragnótabáturinn Austfirðingur HU 204 kemur hér að bryggju á Skagaströnd í vikunni en hann er með heimahöfn á Hvammstanga. Austfirðingur sem áður hét Leynir ÍS 903 hét upphaflega Reykjaborg RE 25 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni á Ísafirði árið 1998. Hér má lesa meira um … Halda áfram að lesa Austfirðingur HU 204 →

Hafnarey SF 36

1738. Hafnarey SF 36 ex Santos av Öckerö. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafnarey SF 36 hét áður Santos av Öckerö og var keypt til Hornarfjarðar frá Svíþjóð árið 1986. Hafnarey, sem var í eigu Krosseyjar hf. á Höfn, var smíðuð árið 1982 hjá Marstal Skipsværft & Maskinfabrikk A/S í Marstal í Danmörku. Báturinn var 101 brl. að stærð en eftir 5,5 metra lengingu … Halda áfram að lesa Hafnarey SF 36 →

Reistarnúpur

586. Reistarnúpur ÞH 273 ex Aron ÞH 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Hér er Reistarnúpur ÞH 273 á leið upp í Húsavíkurslipp í janúarmánuði árið 2001. Reistarnúpur, sem áður hét Aron ÞH 105, var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn sem keypti bátinn haustið 1997. Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg … Halda áfram að lesa Reistarnúpur →

Skjöldur SI 101

978. Skjöldur SI 101 ex Sigurpáll GK 375. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Rækjuskipið Skjöldur SI 101 er hér á toginu um árið en það var Ísafold hf. á Siglufirði sem gerði hann út á árunum 1984-1987. Upphaflega Siglfirðingur SI 150 sem smíðaður var fyrir Siglfirðing hf. á Siglufirði árið 1964 í Ulsteinsvik í Noregi. Tímamótaskip en … Halda áfram að lesa Skjöldur SI 101 →