
Skemmtiferðaskipið MCS Magnifica var í höfn í Malaga þegar við komum til borgarinnar í dag og tók ég þessa mynd úr íbúðinni sem við dveljum í næstu daga.
Gaman að geta þessa að ég myndaði skipið í La Spezia á Ítalíu fyrir rúmu ári.
Skipið sem skráð er í Panama var smíðað í Frakklandi árið 2010 og er 298,3 metrar að lengd.
Breidd þess er er 32,3 metrar og það mælist 95,128 GT að stærð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.