Ósk KE 5

2462. Ósk KE 5 ex Rúna RE 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005.

Dragnótabáturinn Ósk KE 5 kemur hér til hafnar í Keflavík haustið 2005 en báturinn hét upphaflega Rúna RE 150 og var smíðaður í Kína árið 2001.

 Í ársbyrjun 2005 fær báturinn nafnið Ósk KE 5 eftir að Útgerðarélagið Ósk ehf. keypti hann til Keflavíkur.

Um mitt ár 2006 kaupir Útgerðarfélgið Haukur ehf. í Ólafsvík Óskina og nefnir Gunnar Bjarnason SH 122.

Báturinn var skutlengdur um 2,5 metra í Skipavík í Stykkishólmi og mælist hann eftir það 100 brl./ 122 BT að stærð.

Í ársbyrjun árið 2025 fékk báturinn nafnið Hafdís SK 4 og er gerður út af FISK-Seafodd á Sauðárkróki.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution



Færðu inn athugasemd