Sæþór EA 101

1291. Sæþór EA 101 ex Votaberg SU 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Sæþór EA 101 hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði árið 1973. Jón Helgason ÁR 12 var 120 brl. að stærð smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn. Báturinn var 120 brl. að stærð búinn … Halda áfram að lesa Sæþór EA 101

Jóhanna Magnúsdóttir RE 70

708. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 ex Gustur SH 143. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhanna Magnúsdóttir RE 70 kemur hér til hafnar í Reykjavík um miðjan níunda áratug síðustu aldar. Upphaflega hét báturinn Pétur Sigurðsson RE 331 og var smíðaður í Landssmiðjunni í Reyjavík árið 1956. Hann var smíðaður fyrir Sigurð Pétursson í Djúpuvík á Ströndum. Báturinn, … Halda áfram að lesa Jóhanna Magnúsdóttir RE 70

Þórsnes II SH 109

1424. Þórsnes II SH 109. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Þórsnes II SH 109, sem hér að ofan sést draga netin á Breiðafirði, var smíðað fyrir samnefnt fyrirtæki í Stykkishólmi árið 1975. Þórsnes II SH 109 var eitt þeirra raðsmíðaskipa sem Slippstöðin á Akureyri smíðaði og voru af­hent eigendum sínum á árunum 1971 til 1975. Stærð þessara … Halda áfram að lesa Þórsnes II SH 109

Gulltoppur ÁR 321

874. Gulltoppur ÁR 321 ex Gulltoppur GK 321. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Gulltoppur ÁR 321 kemur hér að landi í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni árið 1982 en upphaflega hét hann Ver NK 19. Nói Kristjánsson bátasmiður á Akureyri smíðaði bátinn árið 1962 fyrir Guðmund Bjarnason og Freystein Þórarinsson í Neskaupstað. Hann var 10 brl. að stærð búinn … Halda áfram að lesa Gulltoppur ÁR 321

Jói á Nesi SH 159

472. Jói á Nesi SH 159 ex Stefán Kristjánsson SH 184. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Jói á Nesi SH 159 var smíðaður árið 1946 í Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar hf. og hét upphaflega Guðbjörg GK 6. Guðbjörg GK 6 var 58 brl. að stærð og smíðuð fyrir Hlutafélagið Björg í Hafnarfirði. Að því félagi stóðu Bæjarútgerð Hafnafjarðar, Bátafélag … Halda áfram að lesa Jói á Nesi SH 159

Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla

Húsavík á aðfangadegi jóla. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Hér koma nokkrar myndir sem teknar voru við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla þetta árið. Við Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla 2019. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Húsavíkurhöfn á aðfangadegi jóla

Bárður kom til heimahafnar í dag

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Alfons Finnsson 2019. Bárður SH 81 kom til heimahafnar í Ólafsvík í dag og tók Fonsi þessa mynd af honum við það tækifæri. Bárður SH 81 kom til landsins 30. nóvember sl. en þá lagðist hann að bryggju í Hafnarfirði þar sem m.a var sett í bátinn netaspil og krapakerfi. … Halda áfram að lesa Bárður kom til heimahafnar í dag

Skálaberg á siglingu á Skjálfanda

923. Skálaberg ÞH 244 ex Sigurður Þorkelsson ÍS 200. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Skálaberg ÞH 244 er hér á siglingu á Skjálfanda sumarið 1987 en báturinn var gerður út frá Húsavík árin 1985-1990. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda Þorleifsson h/f í Ólafsfirði og hét Þorleifur Rögnvaldsson ÓF 36. Báturinn var endurbyggður … Halda áfram að lesa Skálaberg á siglingu á Skjálfanda

Núpur ÞH 3

1591. Núpur ÞH 3 ex Núpur BA 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Núpur ÞH 3 siglir hér inn með slippkantinum á Akureyri um árið. Dalborg, Hegranes og Nökkvi í bakgrunni. Núpur ÞH 3 var í eigu Kaldbaks hf. á Grenivík um nokkurra ára skeið á níunda áratugnum var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Szczecinska Stocznic Remontowa í Póllandi … Halda áfram að lesa Núpur ÞH 3