Bjarnarvík ÁR 13

482. Bjarnarvík ÁR 13 ex Bakkavík ÁR 100. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Bjarnarvík ÁR 13 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíðinni 1982 en myndina tók Hreiðar Olgeirsson skipstjóri á Kristbjörgu ÞH 44 frá Húsavík. Bjarnarvík var þegar þarna var komið í eigu Suðurvarar hf. í Þorlákshöfn. Upphaflega hét báturinn Guðmundur Þórðarson GK 75 … Halda áfram að lesa Bjarnarvík ÁR 13

Árni Þorkelsson KE 46 á Siglufirði

13. Árni Þorkelsson KE 46. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Árni Þorkelsson KE 46 landar hér síld á Siglufirði en myndina tók Hannes Baldvinsson. Árni Þorkelsson var smíðaður í Þýskalandi árið 1961 og kom til landsins um páskana árið 1961 en sagt var frá komu hans í Faxa: Árni Þorkelsson er 101 smál. stálskip, smíðað í … Halda áfram að lesa Árni Þorkelsson KE 46 á Siglufirði

Arney KE 50 á siglingu

1416. Arney KE 50 ex Ásborg EA 259. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson. Arney KE 50 sem hér sést á siglingu hét upphaflega Skarðsvík SH 205 og var í eigu samnefnds fyrirtæki á Hellisandi. Skarðsvík SH 205 var smíðuð árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi, hún hafði smíðanúmer 620. Hún var fjórða … Halda áfram að lesa Arney KE 50 á siglingu

Bliki EA 12 á toginu

2286. Bliki EA 12 ex Nataarnaq. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Rækjutogarinn Bliki EA 12 frá Dalvík var keypur frá Grænlandi árið 1997 af samnefndu fyrirtæki á Dalvík. Bliki EA 12 var og er systurskip Júlíusar Havsteen ÞH 1 sem í dag heitir Sóley Sigurjóns GK 200. Togararnir voru smíðaðir fyrir Grænlendinga í Hvide Sand í Danmörku … Halda áfram að lesa Bliki EA 12 á toginu

Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn

939. Magnús SH 11 ex Halldóra Jónsdóttir ÍS 99. Ljósmynd Þórður Birgisson. Hér liggur Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn á milli Egils SH 195 og Jökuls SH 15. Magnús SH 11 hét upphaflega Öðlingur VE 202 og  var smíðaður í Danmörku 1957. Hann var 52 brl. að stærð, með 265 hestafla Alpha aðalvél. Eigendur hans … Halda áfram að lesa Magnús SH 11 í Ólafsvíkurhöfn

Jónína ÍS 930

2142. Jónína ÍS 930 ex Glóðanes. Ljósmynd Sigfús Jónsson. Línubáturinn Jónína ÍS 930 var keypt til Íslands frá Klakksvík í Færeyjum sumarið 1991 en þar hét báturinn Glóðanes. Það var Brimnes hf. á Flateyri sem keypti bátinn en hann var smíðaður árið 1988 hjá Moen Slip og Mekanisk Verksted A/S, í Kolvereid í Noregi. Jónína … Halda áfram að lesa Jónína ÍS 930

Ný skip við bryggju í Hafnarfirði

2965. Bárður SH 81, 2962. Vörður ÞH 44. 2958. Áskell ÞH 48. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Magnús Jónsson tók þessa mynd í Hafnarfirði fyrir helgi en hún sýnir þrjú af nýjustu skipum flotans. Bárður SH 81 er nýkominn til landsins en hann var smíðaður í Danmörku og Gjögursbátarnir Vörður ÞH 44 og Áskell ÞH 48 … Halda áfram að lesa Ný skip við bryggju í Hafnarfirði