Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld

1401. Hrafn GK 111 ex Ágúst GK 95. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Það er mikil stemming í höfnum við Reykjanesið þessa dagana og margir að róa. Línuskipið Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld og tók Jón Steinar þessa flottu myndasyrpu af honum. Hrafn GK 111 var með fullfermi, það er rúm … Halda áfram að lesa Hrafn GK 111 kom að landi í Grindavík undir kvöld →

Júlíus Geirmundsson ÍS 270

1977. Júlíus Geirmundsson ÍS 270. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2020. Þessar myndir af Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 tók Hólmgeir Austfjörð á Vestfjarðarmiðum í síðustu viku. Júlíus Geirmundsson ÍS 270, sem var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Gryfia í Stettin í Póllandi árið 1989, er 57,20 metrar á lengd og 12,10 metrar á breidd. Hann er búinn 3340 hestafla … Halda áfram að lesa Júlíus Geirmundsson ÍS 270 →

Marta Ágústsdóttir GK 14

967. Marta Ágútsdóttir GK 14 ex GK 31. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hér koma nokkrar myndir af Mörtu Ágústsdóttur GK 14, sem var í eigu Eldhamars ehf., koma til hafnar í Grindavík þann 10. mars árið 2009. Upphaflega Keflvíkingur KE 100 og var hann fyrstur í röð átján báta sem Þjóðverjar smíðuðu fyrir Íslendinga í Boizenburg … Halda áfram að lesa Marta Ágústsdóttir GK 14 →

Tómas í brælu

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogari Þorbjarnar hf., Tómas Þorvaldsson GK 10, er hér á toginu á Vestfjarðarmiðum í vikunni, myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð. Togarinn var smíðaður í Noregi árið 1992 fyrir Skagstrending hf. á Skagaströnd og hét þá Arnar HU 1. Arnar var seldur til Grænlands árið 1995 … Halda áfram að lesa Tómas í brælu →

Eldeyjar Hjalti GK 42

1125. Eldeyjar Hjalti GK 42 ex Vöttur SU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eldeyjar Hjalti GK 42 var smíðaður hjá Einar S. Nielsen Mek. Verksted A/S í Harstad í Noregi og afhentur á árinu 1968. Bar hann upphaflega nafnið Palomar T-22-SA en árið 1970 keypti Útgerðarfélagið Óðinn h/f á Suðureyri við Súgandafirði bátinn til Íslands. Hann … Halda áfram að lesa Eldeyjar Hjalti GK 42 →

Aðalbjörg II RE 236

1414. Aðalbjörg II RE 236 ex Vinur EA 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aðalbjörg II RE 236 kemur að bryggju í Reykjavíkurhöfn á níunda áratug síðustu aldar. Einhverra hluta vegna á ég ekki margar brúklegar myndir af þessum bát undir þessu nafni en upphaflega hét hann Vöttur SU 3. Báturinn var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör hf. … Halda áfram að lesa Aðalbjörg II RE 236 →