Wilson Skaw kom til Húsavíkur í dag

IMO 8918459. Wilson Skaw ex Elianna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Wilson Skaw kom til hafnar á Húsavík um miðjan dag í dag og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað árið 1996, kom með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Wilson Skaw siglir undir fána Barbados með heimahöfn í Bridgetown. Það er 113 metra … Halda áfram að lesa Wilson Skaw kom til Húsavíkur í dag

Kristbjörg ÞH 44

1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Aldrei of margar myndir af Kibbunni, smíðuð í Skipavík fyrir Korra hf. á Húsavík árið 1975. Þarna var farið að vora og menn enn á netum. Pabbi í brúnni, Már Höskuldsson og Jón Skúli Sigurgeirsson klárir fram á. Bræðurnir Magnús og Völundur úr Sólbrekkunni voru í áhöfn líka … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44

Júlía VE 123 á rækjuveiðum

623. Júlía VE 123 ex Skálafell RE 20. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Júlía VE 123 er hér að rækjuveiðum á Öxarfirði um miðjan níunda áratug síðustu aldar en báturinn var þá gerður út frá Kópaskeri. Grímnir hf. á Kópaskeri keypti bátinn frá Vestmannaeyjum 1983-1984 og gerði út um tíma. Hann var talinn ónýtur og tekinn af … Halda áfram að lesa Júlía VE 123 á rækjuveiðum

Einar frá Myre

Einar N-31-Ø. Ljósmynd Magnús Jónsson 2019. Einar N-130-Ø lá fyrir linsunni hjá Magga Jóns í Hafnarfjarðarhöfn en Einar er af gerðinni Cleopatra 50B. Við fáum nánari fréttir af bátnum frá Trefjum síðar en Einar er með heimahöfn í Myre. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Einar frá Myre

Beggi kominn á þurrt

1350. Beggi ÞH 343 við Norðurgarðinn á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Beggi ÞH 343 var hífður á land á Húsavík um miðjan daginn en hann sökk við bryggju í morgun. Björg­un­ar­sveit­ar­menn og kafari voru kvadd­ir á staðinn og tókst að koma Begga á flot þar sem dælt var úr hon­um. Óvíst er hvers vegna … Halda áfram að lesa Beggi kominn á þurrt

Smáey VE 444 hélt til veiða í morgun

2444. Smáey VE 444 ex Vestmannaey VE 444. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Togskipið Smáey VE 444 hélt til veiða frá Vestmannaeyjum í morgun og tók Hólmgeir Austfjörð þessar myndir við það tækifæri. Smáey VE 444 hét áður Vestmannaey VE 444 en fékk núverandi nafn fyrr á þessu ári þegar ný Vestmannaey VE 54 kom í … Halda áfram að lesa Smáey VE 444 hélt til veiða í morgun

Við Húsavíkurhöfn að morgni dags

Við Húsavíkurhöfn að morgni 22. október 2019. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hann var hægur í morgun þegar ég fór niður að höfn með myndavélina en gekk á með éljum. Við Húsavíkurhöfn að morgni 22. október 2019. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Við Húsavíkurhöfn að morgni 22. október 2019. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn að morgni dags