IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Grænlenski frystitogarinn Ilivleq GR-2-201 er hér að makrílveðum í fyrrasumar en myndirnar tók Hólmgeir Austfjörð. Togarinn er í eigu Arctic Prime Fisheries ApS á Grænlandi en hann var smíðaður í spænsku skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Gijon á Norður-Spáni og afhentur vorið 2020. IMO: 9830434. Ilivileq GR 2-201. … Halda áfram að lesa Ilivleq að veiðum
Author: Hafþór Hreiðarsson
Hópsnes GK 77
1095. Hópsnes GK 77. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hópsnes GK 77 var smíðað fyrir samnefnda útgerð í Grindavík. Smíðin fór fram í Stálvík og var báturinn afhentur eigendum sínum árið 1970. Báturinn var gerður út frá Grindavík til ársins 1988 en þá voru höfð bátaskipti við Grundfirðinga og fékk Hópsnesið nafnið Skipanes SH 608. Ári síðar … Halda áfram að lesa Hópsnes GK 77
Grindavíkurbátar á landleið
1890. Katrín GK 266 - 2888. Auður Vésteins SU 88. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Hér gefur að líta tvo Grindavíkurbáta á landleið í dag en myndina tók Jón Steinar á drónann úti fyrir Grindavík. Katrín GK 266 er á undan en í kjölfar hennar kemur Auðsur Vésteins SU 88. Báðir bátarnir gerðir út á … Halda áfram að lesa Grindavíkurbátar á landleið
Iosif Shmelkin K-2156
IMO 8917223. Iosif Shmelkin K-2156 ex Tyulen. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Rússneski skuttogarinn Iosif Shmelkin K-2156 er hér að veiðum sl. sumar en myndina tók Hólmgeir Austfjörð. Skipið , sem er með heimahöfn í Kalingrad, var smíðað árið 1990 og er 3.981 GT að stærð. Lengd þess er 90 metrar og breiddin 13 metrar. Það … Halda áfram að lesa Iosif Shmelkin K-2156
Gøtunes FD 950
IMO: 9809265. Gøtunes FD 950 ex Gitte Henning I FD 950. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2021. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir af nóta- og togskipinu Gøtunesi FD 950 frá Færeyjum sl. sumar en þá var skipið á makrílveiðum. Gøtunes, sem hefur heimahöfn í Gøtu, hét upphaflega Gitte Henning S 349 með heimahöfn í Skagen í Danmörku. … Halda áfram að lesa Gøtunes FD 950
Náttfari og glitskýin
993. Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þau voru fögur glitskýin í gær og ekkert að því að nota Náttfara í forgrunni þar sem hann stóð uppi í slippnum á Húsavík. Náttfari ber aldurinn vel en þann 20. febrúar nk. verða 57 ár síðan hann var sjósettur í Stykkishólmi hvar hann var smíðaður. Hann … Halda áfram að lesa Náttfari og glitskýin
Jökull kominn á net
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík í dag en hann er gerður út á þorskanet þessa dagana. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. Hann er útbúinn til … Halda áfram að lesa Jökull kominn á net
Grímsnes GK kom að landi í Grindavík
89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Grímsnes GK 555 kemur hér að landi í Grindavík í dag en báturinn er gerður út af Maron ehf. til netaveiða. 89. Grímsnes GK 555 ex Grímsnes BA 555. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2022. Með því að smella á myndirnar er hægt … Halda áfram að lesa Grímsnes GK kom að landi í Grindavík
Sæborg ÞH 55
1475. Sæborg ÞH 55 ex Eyvindur KE 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Sæborg ÞH 55 siglir hér um Skjálfandaflóa á sjómannadeginum árið 2005 en þarna var hún í eigu Hraunútgerðarinnar ehf. á Húsavík. Sæborg ÞH 55, sem er 40 brl. að stærð, var smíðuð á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri árið 1977. Hún var … Halda áfram að lesa Sæborg ÞH 55
Dúddi Gísla
2778. Dúddi Gísla GK 48. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Dúdda Gísla GK 48 koma úr róðri í gær, náði að setja drónann á loft á milli élja. Aflinn hjá Dúdda Gísla, sem gerður er út af BESA ehf., um níu tonn. 2778. Dúddi Gísla GK 48. Ljósmyndir … Halda áfram að lesa Dúddi Gísla









