Sævík komin úr breytingum

2714. Sævík GK 757 ex Óli Gísla. GK 112. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sævík GK 757 kom til Grindavíkur í gærkveldi eftir að hafa verið í slipp í Skipasmíðastöð Njarðvíkur að undanförnu. Þar var hún meðal annars lengd um þrjá metra, ný 60 kw. ljósavél sett í hana og svokallaður "skriðdreki" settur á dekkið … Halda áfram að lesa Sævík komin úr breytingum

Fagraberg FD 1210

IMO 9184641. Fagraberg FD 1210 ex Krúnborg. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2022. Hér gefur að líta færeyska uppsjávarveiðiskipið Fargraberg FD 1210 við makrílveiðar fyrr í sumar. Fagraberg var smíðað árið 1999 og hét áður Krúnborg. Skipið er 2,832 brúttótonn að stærð, lengd þess er 83 metrar og breiddin 14 metrar. Fagraberg FD 1210 er með heimahöfn í … Halda áfram að lesa Fagraberg FD 1210

Austfirðingur SU 205

2640. Austfirðingur SUU 205 ex Guðrún GK 47. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Austfirðingur SU 205 kom til Húsavíkur í kvöld en hann hefur stundað handfæraveiðar síðustu mánuðina. Það er Gullrún ehf. á Breiðdalsvík sem gerir bátinn, sem hét upphaflega Dúddi Gísla GK 48, út. Hann var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2004 og … Halda áfram að lesa Austfirðingur SU 205

Vestri BA 63

3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði kom til hafnar á Húsavík í morgun og hafði hér stutta viðdvöl. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi í vetur. Í Noregi hét það Tobis en fékk nafnið Vestri BA 63 og kom í stað eldri og minni báts … Halda áfram að lesa Vestri BA 63

Laxá í heimahöfn á Húsavík

Flutningaskipið Laxá í heimahöfn á Húsavík vorið 1975. Á þessari mynd má sjá flutningaskipið Laxá í fyrsta skipti í heimahöfn á Húsavík vorið 1975. Ekki er nafn ljósmyndara kunnungt en myndin kom úr safni Péturs Jónassonar ljósmyndara á Húsavík. Sigurður Pétur Björnsson fréttaritari Morgunblaðsins reit eftirfaranadi frétt sem birtist í blaðinu þann 20 maí 1975: … Halda áfram að lesa Laxá í heimahöfn á Húsavík

Björg Jónsdóttir ÞH 321

586. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Langanes ÞH 321. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér koma myndir af Björgu Jónsdóttur ÞH 321, þeirri fyrstu af sjö sem Langanes gerði út á sínum tíma. Björg Jónsdóttir ÞH 321, sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321

Sighvatur GK á útleið frá Grindavík

1416. Sighvatur GK 57 ex Sævík GK 257. Ljósmynd Jón Steinar 2022. Línubáturinn Sighvatur GK 57 lá fyrir dróna Jóns Steinars í kvöld þegar hann lagði upp í veiðiferð frá Grindavík. Hann kom í land í morgun til löndunar. Aflinn var um 240 kör sem gerir tæp 80 tonn. Uppistaða aflans var keila, eða rúm 160 … Halda áfram að lesa Sighvatur GK á útleið frá Grindavík