Ultramarine

IMO 9861017. Ultramarine. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Farþegaskipið Ultramarine lætur hér úr höfn á Húsavík í kvöld en það hafði stutta viðkomu hér í dag. Skipið var smíðað í Split í Króatíu árið 2021 og siglir undir fána Marshalleyja með heimahöfn á Majuro. Ultramarine er 116 metrar að lengd, 22 metra breitt og mælist 13,827 … Halda áfram að lesa Ultramarine →

Staðarey ÍS 351

7458. Staðarey ÍS 358 ex Staðarey SF 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Staðarey ÍS 358 hét upphaflega Guðrún HF 172 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1997. Síðar það ár fékk báturinn nafnið Díana GK 77 með heimahöfn í Grindavík. Árið 1999 fékk báturinn nafnið Stormur ÍS 800 með heimahöfn í Bolungarvík … Halda áfram að lesa Staðarey ÍS 351 →

Þorkell Árnason GK 21

1231. Þorkell Árnason GK 21 ex Hafalda SU 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorkell Árnason GK 21 úr Garðinum kemur hér til hafnar í Sandgerði um árið en þaðan var hann lengstum gerður út. Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupsstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. Báturinn hét Hafalda SU 155 og var 65 … Halda áfram að lesa Þorkell Árnason GK 21 →

Straumnes ÍS 240

2499. Straumnes ÍS 240 ex Kolbeinsey EA 352. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Straumnes ÍS 240 kemur hér til hafnar á Suðureyri í byrjun mánaðarins en það er heimahöfn bátsins sem upphaflega hét Kolbeinsey EA 352. Kolbeinsey var smíðuð fyrir Guðlaug Óla Þorláksson í Grímsey hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001. Báturinn var með heimahöfn … Halda áfram að lesa Straumnes ÍS 240 →

Le Lapérouse við Torfunefsbryggju

IMO 9814026. Le Lapérouse. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Franska skemmtiferðaskipið Le Lapérouse liggur hér við Torfunefsbryggjuna á Akureyri í morgun en það er skráð á Wallis og Fútúneyjum í Suður Kyrrahafi. Það er Pontant skipafélagið sem gerir skipið út en það var smíðað hjá hjá Vard Group AS í Noregi og tekið í notkun vorið 2018. Skrokkur … Halda áfram að lesa Le Lapérouse við Torfunefsbryggju →

Ingibjörg SH 112 kom til landsins í gærkveldi

3078. Ingibjörg SH 112 ex Laurits H. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Ingibjörg SH 112 sem Breiðavík ehf. í Ólafsvík keypti frá Noregi fyrir skömmu kom til landsins í gærkveldi og tók Jón Steinar þessar myndir þar sem báturinn var á siglingu undan Hólmsbergi á leið sinni til Njarðvíkur. Svo skrifar Jón Steinar á síðu … Halda áfram að lesa Ingibjörg SH 112 kom til landsins í gærkveldi →

Sigfús B ÍS 401

6794. Sigfús B ÍS 401 ex Æsa GK 115. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Strandveiðibáturinn Vigfús B ÍS 401 kemur hér að landi á Suðureyri í byrjun mánaðarins en það er hans heimahöfn. Vigfús B hét upphaflega Leon HF 83 og var smíðaður hjá Bátsmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1986. Árið 1990 fékk báturinn nafnið Æsa … Halda áfram að lesa Sigfús B ÍS 401 →