Le Lapérouse við Torfunefsbryggju

IMO 9814026. Le Lapérouse. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026.

Franska skemmtiferðaskipið Le Lapérouse liggur hér við Torfunefsbryggjuna á Akureyri í morgun en það er skráð á Wallis og Fútúneyjum í Suður Kyrrahafi.

Það er Pontant skipafélagið sem gerir skipið út en það var smíðað hjá hjá Vard Group AS í Noregi og tekið í notkun vorið 2018.

Skrokkur skipsins var smíðaður í skipasmíðastöð Vard A/S í Tulcea í Rúmeníuen það er 131, 46 metrar að lengd og 18 metra breitt.

Gaman að geta þess að skipinu var formlega gefið nafn í Hafnarfjarðarhöfn í júnímánuði árið 2018.

Pontant á fleiri skip þessarar gerðar og eru það m.a Le Champlaine, Le Bellot og Le Bougainville en Le Lapérouse var fyrst í röðinni.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd