
Straumnes ÍS 240 kemur hér til hafnar á Suðureyri í byrjun mánaðarins en það er heimahöfn bátsins sem upphaflega hét Kolbeinsey EA 352.
Kolbeinsey var smíðuð fyrir Guðlaug Óla Þorláksson í Grímsey hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001.
Báturinn var með heimahöfn í Grímsey til ársins 2013 en þá var hann seldur til Suðureyrar og hefur verið gerður út þaðan fram til dagsins í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.