Náttfari við bryggju í Flatey

993. Náttfari ex Byrefjell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Norðursiglingarbáturinn Náttfari liggur hér við bryggju í Flatey á Skjálfanda í ágústmánuði árið 2000. Náttfari var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1965 og hét upphaflega Þróttur SH 4.  Þróttur, sem var fyrsti báturinn sem Skipavík smíðaði, hét ýmsum nöfnum í gegnum tíðina en Norðursigling keypti bátinn … Halda áfram að lesa Náttfari við bryggju í Flatey

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn

Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson. Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn var afhjúpaður á Akureyri í gær og er hann staðsettur á Höepfnerssvæðinu. Haukur Sigtryggur Valdimarsson tók meðfylgjandi myndasyrpu við þetta tækifæri. Ljósmyndir Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2026. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær … Halda áfram að lesa Minnisvarði um síðutogara og síðutogarasjómenn

Maliina Ittuk

IMO 9987988. Maliina Ittuk. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Hér gefur að líta grænlensku farþegaferjuna Maliina Ittuk við bryggju í Grindavík um helgina. Jón Steinar tók myndina og meðfylgjandi texta skrifaði hann á síðu sína Báta og bryggjurölt: "Þetta ku vera stærsta farþegaskip Grænlands í innanlands dagsferðum hjá þeim og einnig fyrsta nýsmíðin fyrir þá … Halda áfram að lesa Maliina Ittuk

Til hamingju með daginn sjómenn

Frá kappróðri á Húsavík árið 2006. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Með þessari mynd sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Myndin var tekin á Sjómannadeginum árið 2006 og þarna etja húsvískir sjómenn kappi í kappróðri. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn

Skemmtisigling á línuskipum Vísis

Páll Jónson GK 7 og Sighvatur GK 57 í skemmtisiglingu í morgun. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026. Línuskip Vísis í Grindavík fóru í skemmtisiglingu í tilefni Sjómannadagsins í morgun og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu við það tilefni. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2026. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Skemmtisigling á línuskipum Vísis

Sjómannadagshelgin runnin upp

Smábátar með signalinn uppi í Húsavíkurhöfn að morgni 6. júní 2026. Þá er Sjómannadagshelgin runnin upp og segja má með sanni að lítið fer orðið fyrir Sjómannadeginum á Húsavík og er það af sem áður var. Á meðfylgjandi mynd sem tekin var í morgun gefur að líta smábáta með signailinn uppi og það gleður augað. … Halda áfram að lesa Sjómannadagshelgin runnin upp

Sighvatur Bjarnason VE 81

2281. Sighvatur Bjarnason VE 81 ex Gunnar Langva. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Sighvatur Bjarnason VE 81 kemur hér til hafnar í Reykjavík sumarið 2016. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum keypti skipið frá Noregi þar sem það bar nafnið Gunnar Langva og kom það til landsins vorið 1996. Sighvatur Bjarnason var smíðaður árið 1975 í Flekkefjord en lengdur … Halda áfram að lesa Sighvatur Bjarnason VE 81