
Sjöfn NS 123 frá Bakkafirði hét upphaflega Magnús Marteinsson NK 85 og var báturinn smíðaður hjá Frederikssund Skipsværft A/S í Frederikssund í Danmörku árið 1956.
Báturinn var seldur til Flateyrar þar sem hann fékk nafnið Ásgeir Torfason ÍS 96 og það nafn bar hann til ársins 1978 þegar hann fékk nafnið Sjöfn ÞH 142 með heimahöfn á Grenivík.
Vorið 1990 var báturinn, sem þá hafði verið Sjöfn II ÞH 264 um tíma, seldur til Bakkafjarðar þar sem hann varð Sjöfnn II NS 123.
Sjöfn II var á Bakkafirði til ársins 1996 en eftir það bar báturinn nöfnin Surtsey VE 123, Eldhamar GK 13, Eldhamar II GK 139 og að lokum Gullfaxi GK 14.
Gullfaxi, sem var reyndar samkvæmt skrám GK 147 í restina, var tekinn af skipaskrá og rifinn í Grindavík árið 2008.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution