
Frár hét upphaflega Stakkur KÓ 2 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1984.
Báturinn var keyptur til Húsavíkur árið 1986 og var til að byrja með ÞH 47 en síðar sama ár var Frár skráður sem skemmtibátur.
Ef ég man rétt voru það Hermann heitinn Ragnarsson og Jóhannes Jónsson sem áttu Frá og notuðu m.a til ferða út í Flatey á Skjálfanda.
Frár var á Húsavík til ársins 2002 er hann var seldur á Hofsós þar sem hann hélt nafninu til ársins 2022 en þá fékk hann nafnið Mundi Steins.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution