
Skarðsvík AK 205 liggur hér við bryggju á Akureyri og það sennilega haustið 1990.
Skarðsvík var upphaflega SH 205 og var smíðuð árið 1975 hjá Baatservice Verft A/S í Mandal í Noregi, hún hafði smíðanúmer 620.
Hún var fjórða og jafnframt síðasta stálfiskiskipið í raðsmíði stöðvarinnar fyrir íslenska aðila. Þrjú þau fyrri voru Gullberg VE 292, Huginn VE 55 og Árni Sigurður AK 370. Skarðsvík var yfirbyggð árið 1977.
Síldar- og fiskimjölsverksmiðjan á Akranesi festi kaup á Skarðsvík SH 205 vorið 1990 og varð hún við það AK 205. Í nóvember sama ár keypti Borg h/f í Hrísey skipið og nefndi Ásborgu EA 259.
Í desembermánuði 1992 keypti Arney ehf. í Keflavík skipið sem í ársbyrjun 1993 fékk nafnið Arney KE 50.
Arney KE 50 var gerð út frá Sandgerði fram yfir aldamót en Skinney-Þinganes hf. keypti útgerðina vorið 2001 Við það fékk Arney nafnið Steinunn SF 10 sem hún bar til ársins 2009 en það sumar var hún seld til Vestmannareyja. Það var Kópavík ehf. sem keypti Steinunni, sem þá var orðin SF 107, og nefndi Hafursey VE 122.
Árið 2011 keypti Vísir hf. skipið og stóð það uppi í Skipasmíðastöð Njarðvíkur um árabil undir nafninu Sævík GK 257. Sumarið 2018 kom skipið heim eftir gagngerar breytingar í Póllandi og undir nýju nafni, Sighvatur GK 57, og leysti gamla nafna sinn af hólmi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution