Aron ÞH 105

586. Aron ÞH 105 ex Fargranes ÞH 123. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér má sjá Aron ÞH 105 með afturendann upp við bryggju framan við netagerð Höfða á Húsavík og eitthvað verið að eiga við rækjutrollið.

Báturinn sem var 76 brl. að stærð hét uppgaflega Guðbjörg ÍS 14 og var smíðuð í V-Þýskalandi árið 1959 fyrir Hrönn h/f á Ísafirði. 

Báturinn bar síðan nöfnin Hrönn ÍS 46, Sæbjörg SH 23, Farsæll SH 30, Langanes ÞH 321, Björg Jónsdóttir ÞH 321 og Fagranes ÞH 123 áður en hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni.

Síðar fékk báturinn nafnið Reistarnúpur ÞH 273 og að lokum Stormur SH 333.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd