
Þessar myndir tók ég 22. júní í sumar þegar Sighvatur GK 57 kom til heimahafnar í Grindavík eftir endurbyggingu í Póllandi.
Sighvatur sem áður hét Sævík GK 257 var um eitt ár í Algorskipasmíðastöðinni þar sem það var allt endurbyggt og lengt. Um 2/3 hluta stálsins er enn á sínum stað í skrokk skipsins. Allt annað er nýtt.
Sighvatur hinn nýi, sem upphaflega hét Skarðsvík SH 205, leysti nafna sinn af hólmi sem smíðaður var í Boizenburg 1965 og hét upphaflega Bjartur NK 121.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í stærri upplausn.