Við Húsavíkurhöfn 17. júní

Við Húsavíkurhöfn 17. júní 2024. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var fallegt og kyrrt veður við Húsavíkurhöfn að kveldi Þjóðahátíðardags og bátarnir spegluðust í haffletinu þar sem þeir lágu við flotbryggjurnar. Á myndinni eru Faldur, Sylvía og Bjössi Sör. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn 17. júní →

Fjölnir seldur úr landi

1136. Fjölnir GK 157 ex Ocean Breeze. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línuskipið Fjölnir GK 157 hefur verið seldur til Noregs og verður afhentur nýjum eigendum á næstu dögum. Báturinn hefur legið í Reykjavíkurhöfn undanfarna mánuði og var myndin hér að ofan tekin í byrjun maímánaðar. Fjölnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt … Halda áfram að lesa Fjölnir seldur úr landi →

Silver Wind á Húsavík

IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom til Húsavíkur að morgni þjóðhátíðardags og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. IMO 8903935. Silver … Halda áfram að lesa Silver Wind á Húsavík →

Merweborg kom í morgun

IMO 9142552. Merweborg ex Msc Bothnia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Merweborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið er 136 metrar að lengd, breidd þess er 16,5 metrar og það mælist 6,540 GT að stærð. Merweborg var smíðað í Hollandi árið 1997 og er með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Merweborg kom í morgun →

Hanseatic nature

IMO 9817133. Hanseatic nature. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Hanseatic nature var á Húsavík í dag en skipið lét úr höfn um kaffileytið. Skipið er eitt þriggja systurskipa smíðuð hjá VARD Group AS í Noregi. Hin eru Hanseatic spirit og Hanseatic inspiration sem kom hingað á dögunum. Skipin taka allt að 230 farþega. Hanseatic nature … Halda áfram að lesa Hanseatic nature →

Björgvin EA 311 lagður af stað til Spánar

1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2024. Börgvin EA 311 sigldi frá Dalvík í hinsta skipti dag en togarinn hefur, eins og áður hefur komið fram, verið seldur úr landi. Haukur Sigtryggur tók meðfylgjandi myndir í dag en þeir Hartmann Kristjánsson og Leifur Björnsson fyrrverandi skipverjar á Björgvin leystu landfestar hans. Ljósmyndir Haukur … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 lagður af stað til Spánar →

Cuxhaven kom til Akureyrar í dag

IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það líður að sjö árum frá því við Haukur Sigtryggur tókum okkur far með Fanney EA 28 út á Eyjafjörð og til móts við Cuxhaven NC 100 sem þá var að koma í fyrsta skipti til Akureyrar. Það var í nóvember árið 2017 og ég hef … Halda áfram að lesa Cuxhaven kom til Akureyrar í dag →

Garðar kemur að landi

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér að landi eftir hvalaskoðunarferð út á Skjálfanda í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði … Halda áfram að lesa Garðar kemur að landi →