NG Explorer kom til Húsavíkur í dag

IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur um miðjan dag í dag og það ekki í fyrsta skipti.

Skipið lagðist að Þvergarðinum en Silver Whisper var við Bökugarðinn.

Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og er í eigu Lindblad Expeditions skipafélagsins.

Það er 112 metra langt, 16 metra breitt og mælist 6,471 GT að stærð. Skipið getur tekið allt að 148 farþega í 81 klefa.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd