
Þorgeir Baldursson sendi síðunni þessa mynd sem hann tók í dag á Siglufirði. Hann er á Sóley Sigurjóns GK 200 þessa dagana og nýtti birtuna í dag til að senda drónann sinn á loft.
Það var líf í tuskunum á Sigló en á myndinni eru línuskipin Kristín GK 457 og Tjaldur SH 270 ásamt skuttogaranum fyrrnefnda, Sóley Sigurjóns. Öll voru skipin að landa á Siglufirði í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution