565. Hilmir ST 1 ex Hilmir GK 498. Hilmir ST 1 kemur hér til löndunar á Húsavík sumarið 1993 að mig minnir. Báturinn var þá á úthafsrækjuveiðum. Hilmir, sem hét alla tíð Hilmir, var smíður í Dráttarbraut Keflavíkur h/f árið 1942 og hafði smíðanúmer 1 hjá stöðinni. Hann var smíðaður fyrir Sigurbjörn Eyjólfsson í Keflavík … Halda áfram að lesa Hilmir ST 1
Day: 21. nóvember, 2019
Jólaljósin komin upp á Faldinum
1267. Faldur ex Faldur ÞH 153. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Jólaljósin eru komin upp á hvalaskoðunarbátnum Faldi þar sem hann liggur í Húsavíkurhöfn. Það var því skundað niður á stétt núna á sjötta tímanum og teknar nokkrar myndir og hér er ein þeirra. Faldur hét upphaflega Votaberg ÞH 153 og var smíðaður hjá Skipaviðgerðum hf. … Halda áfram að lesa Jólaljósin komin upp á Faldinum

