
Frystitogarinn Nordtind N-6-VV er hér á rækjuveiðum á Svalbarðasvæðinu í gær.
Myndina tók Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking og voru þeir að veiðum um 100 sml. austur af Hopen.
Nordtind er í eigu norsku stórútgerðarinnar Havfisk AS og hóf veiðar árið 2018. Togarinn var afhentur frá Vard skipasmíðastöðinni í Søviknes í Noregi snemma það ár.
Nordtind er 80,40 metrar að lengd, 16,70 metra breiður og mælist 4,129 GT að stærð. Aðalvélin er 6300 Bhp. RRM Bergen.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.