
Þórunn Sveinsdóttir VE 401 lagði af stað í dag til Skagen í Danmörku þar sem skipið verður lengt.
Togarinn var smíðaður í Skagen árið 2010 fyrir Ós ehf. í Vestmannaeyjum. Skrokkurinn reyndar smíðaður í Póllandi en skipið fullklárað í Skagen.
Til stendur að lengja skipið um 6,6 metra sem þýðir að pláss fyrir kör í lest fer úr 360 körum í 560 kör. Skipið er 40 metrar á lengd og 11,2 metrar á breidd en verður eftir breytingu 46,6 metrar.
Frá þessu er sagt í Fiskifréttum en togarinn verður frá veiðum í tæpa fjóra mánuði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution