
Frystitogarinn Rán HF 42 er hér að leggja upp í veiðiferð um árið.
Smíðaður í Vigó á Spáni 1990 (1991 segir sum staðar) fyrir Norðmenn og hét upphaflega Grinnøy.
Keyptur til Seyðisfjarðar 1992 og kom fyrst til nýrrar heimahafnar 25. ágúst. Togarinn fékk nafnið Ottó Wathne NS 90 og var í eigu samnefnds fyrirtækis.
Stálskip í Hafnarfirði kaupir togarann snemma árs 1994 og fær hann þá nafnið Rán HF 42.
Árið 2005 fær hann svo núverandi nafn, sem er Baldvin Njálsson GK 400, þegar Nesfiskur í Garði kaupir togarann.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.