Ronja Carrier

IMO 9452311. Ronja Carrier. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Seiðaflutningaskipið Ronja Carrier kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt og er í þessum skrifuðu orðum á stími austur að Kópaskeri. Ronja Carrier var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2010 og hét upphaflega Oydrott. Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ronja Carrier →

Skúli fógeti VE 185

1082. Skúli fógeti VE 185 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Það hefur áður komið mynd frá Tryggva af Skúla fógeta VE 185 á síðunni en þar var hann kominn með hvalbakinn. Hér birtist hann hvalbakslaus en báturinn hét upphaflega Fróði ÁR 33 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1969. Fróði … Halda áfram að lesa Skúli fógeti VE 185 →

Tjúlla GK 29 á landleið

2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Tjúlla GK 29 er hér á leið til hafnar í Sandgerði eftir róður í fyrradag. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29 á landleið →

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun

IMO 9813084. Fridtjof Nansen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Fridtjof Nansen. Fridtjof Nansen er svokallað leiðangursskip sem HX Expeditions (áður Hurtigruten) gerir út og ber nafn norska land­könnuðar og vís­inda­mannsins, Fridtjof Nan­sen. Skipið er tví­orku (hybrid) skip og var afhent frá Kleven Verft AS … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun →

Ólafur GK 133

7336. Ólafur GK 133 ex Hafdís ÍS 35. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Ólafur GK 133, nýjasti strandveiðibátur Grindvíkinga, á skaki úti fyrir Hópsnesi við Grindavík í gær en Eiríkur Dagbjartsson gerir hann út í gegnum fyrirtæki sitt Grindjáni ehf. Ólafur GK 133 hét upphaflega Aðalbjörg Þorsteinsdóttir HF 33 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Ólafur GK 133 →

Við Húsavíkurhöfn

Við Húsavíkurhöfn 11. maí 2025. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í veðurblíðu gærdagsins. Á myndinni má m.a sjá strandveiðibáta við bryggju ásamt frístundabátum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn →