Eldeyjar Boði GK 24

971. Eldeyjar Boði GK 24 ex Boði GK 24. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Eldeyjar Boði GK 24 hét upphaflega Guðrún Guðleifsdóttir ÍS 102 og var smíðaður fyrir Miðfell hf. í Hnífsdal árið 1965.  Smíðin fór fram í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft í Boizenburg í A-Þýskalandi. Báturinn var sá fjórði sem kom í fyrri seríunni sem taldi tíu … Halda áfram að lesa Eldeyjar Boði GK 24 →

Jökull hélt til veiða í kvöld

2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 hélt til veiða frá Húsavík í kvöld eftir Sjómannadagsfrí en báturinn stundar grálúðuveiðar í net. Spáin frekar leiðinleg og kallarnir fengu norðanáttina beint í nefið. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 … Halda áfram að lesa Jökull hélt til veiða í kvöld →

Kristinn HU 812

2860. Kristinn HU 812 ex Kristinn SH 812. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af línubátnum Kristni HU 812 koma til hafnar í Grindavík í gær. Kristinn var smíðaður í Trefjum í Hafnarfirði árið 2010 og er af gerðinni Cleopatra 50. Báturinn var smíðaður fyrir útgerðarfélagið Rederij Dezutter í Belgíu og hét upphaflega … Halda áfram að lesa Kristinn HU 812 →

Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun

3060. Heimaey VE 1 ex Pathway PD 165. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Heimaey VE 1, hið nýja uppsjávarveiðiskip Ísfélagsins, kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í morgun. Blíðskaparveður var í Vestmannaeyjum í morgun eins og þessi mynd Tryggva sýnir og ekki amaleg byrjun á Sjómannadagshelginni. Skipið, sem áður hét Pathway PD 165, er allt hið glæsilegasta … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kom til heimahafnar í morgun →

Fram kom í dag

IMO 9370018. Fram. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Norska leiðangursskipið Fram kom til Húsavíkur í morgun og það gerði einnig NG Explorer. Skipið er nefnt eftir skipi norsku landkönnuðanna Roald Amundsen og Fridtjof Nansen.  Fram var smíðað á Ítalíu árið 2007, skipið er 113 metrar að lengd, breidd þess er 26 metrar og það mælist 11,647 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Fram kom í dag →

Dalaröstin í skemmtisiglingu

1639. Dalaröst ÞH 40 ex Dalaröst ÁR 63. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Þá er Sjómannadagurinn framundan og því upplagt að birta eina gamla mynd af Dalaröstinni í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2007. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti bátinn frá Þorlákshöfn árið 1999 en þar bar hann nafnið Dalaröst ÁR 63. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 … Halda áfram að lesa Dalaröstin í skemmtisiglingu →