Haukaberg SH 20

1399. Haukaberg SH 20. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Haukaberg SH 20 frá Grundarfirði er hér á siglingu á Breiðafirði, sennilega á vetrarvertíðinni 1982 frekar en 1983. Í 16-17 tbl. Ægis 1974 sagði ma. svo frá: 11. október s.l afhenti Þorgeir & Ellert h.f. Akranesi nýtt 104 rúmlesta stálfiskiskip, smíðanúmer 30 hjá stöðinni. Skipið sem ber nafnið … Halda áfram að lesa Haukaberg SH 20 →

Aquamarine M-0272 frá Murmansk

Aquamarine M-272 ex Orcades Viking. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Rússneski togarinn Aquamarine M-272 kom til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun en Rússarnir eru að undirbúa karfavertíðina á Reykjaneshryggnum. Togarinn, sem er í eigu NOREBO útgerðarrisans, var smíðaður árið 1991 og er með heimahöfn í Murmansk. Smíði þessa skips hófst fyrir Færeyinga hjá P/f Skala Skipasmidja … Halda áfram að lesa Aquamarine M-0272 frá Murmansk →

Skinney fyrir og eftir breytingar

2732. Skinney SF 20 fyrir breytingar. Ljósmynd Jón Steinar. Hér koma tvær myndir sem sýna Skinney SF 20 fyrir og eftir breytingar sem fram fóru í Póllandi en eins og fyrri færsla sýnir kom skipið til landsins í kvöld. 2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Gunnar Óli Sölvason 2019. Með því að smella á myndirnar er … Halda áfram að lesa Skinney fyrir og eftir breytingar →

Skinney SF 20 komin til landsins eftir breytingar

2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Gunnar Óli Sölvason 2019. Togskipið Skinney SF 20 kom til hafnar í Hafnarfirði í dag og tók Gunnar Óli Sölvason þessar myndir í firðinum. Skipið lagðist að bryggju eftir sex daga siglingu frá Póllandi þar sem það var í lengingu líkt og systurskipið Þórir SF 77. Skipin voru lengd um … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 komin til landsins eftir breytingar →

Jökull ÞH 259 seldur til Noregs

259. Jökull ÞH 259 við komuna til Reykjavíkur. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Fyrir fundi Byggðarráðs Norðurþings á dögunum lá erindi frá GPG Seafood ehf. hvar varðaði forkaupsrétt sveitarfélagsins að fiskiskipinu Jökli ÞH-259. Byggðarráð samþykkti að nýta ekki forkaupsréttinn en að sögn Gunnlaugs Karls Hreinssonar eiganda GPG Seafood ehf. hefur skipið verið selt til Noregs. Jökli var siglt … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 259 seldur til Noregs →

Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun

Mys Cheltinga X-0524. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Frystitogarinn Mys Sheltinga X-0524 frá Kholmsk í Rússlandi kom til Hafnarfjarðar í morgun og lá Óskar Franz fyrir honum þar. Togarinn, sem var afhentur eigendum sínum í janúar 1995, er einn fimmtán togara sem smíðaðir voru í Stralsund í Þýskalandi eftir sömu teikningu og togararnir sem smíðaðir voru … Halda áfram að lesa Mys Cheltinga kom í Hafnarfjörðinn í morgun →

Lagarfoss kom til Helguvíkur nú undir kvöld

Lagarfoss. Ljósmynd KEÓ 2019. Flutningaskipið Lagarfoss kom til hafnar í Helguvík nú undir kvöld og tók Karl Einar Óskarsson þessa mynd úr hafnsögubátnum Auðuni. Lagarfoss er nýjasta skip Eimskips en það var smíðað í Kína árið 2014. Lengd þess er 140,7 metrar og breiddin 23,2 metrar. Mælist 10.106 GT að stærð. Siglir undir færeysku flaggi. … Halda áfram að lesa Lagarfoss kom til Helguvíkur nú undir kvöld →

Geiri Péturs ÞH 344

1207. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sigurbergur GK 212. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1980. Geiri Péturs ÞH 344 kemur hér til hafnar á Húsavík úr grálúðutúr vorið 1980 þar sem línan var beitt um borð. Geiri Péturs ÞH 344 var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri 1971 og hét upphaflega Sigurbergur GK 212. Rétt er að geta … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344 →