1128. Arnarnes SI 70 ex Arnarnes ÍS 42. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér er togarinn Arnarnes SI 70 á toginu á rækjuslóð norðan við land 1988 eða 9. Albert GK 31 í fjarska. Arnarnes var þarna í eigu Sæmundar Árelíusarsonar en síðar Þormóðs Ramma hf. á Siglufirði. Togarinn hét upphaflega Rán GK 42 á íslenskri skipaskrá. Síðar … Halda áfram að lesa Arnarnes SI 70 á rækjuveiðum
Heimaey VE 1 kemur til hafnar með kolmunna
2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Heimaey VE 1 kom til hafnar í Vestmannaeyjum á sjöunda tímanum með kolmunnafarm. Hólmgeir Austfjörð tók þessar myndir sem hér birtast af skipinum en kolmunnaskipin hafa verið að veiðum vestur af syðsta odda Írlands undanförnu. Það er alþjóðlegt hafsvæði. 2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 kemur til hafnar með kolmunna
Fjordvik tekið um borð í Rolldock Sea
Fjordvik á leið upp í Rolldocs Sea. 370. Þróttur heldur í. Ljósmynd Maggi Jóns 2019. Maggi Jóns tók þessar myndir í vikunni þegar sementsflutningaskipið Fjordvik, sem strandaði í Helguvík á Reykjanesi í nóvember, var komið fyrir í Rolldock Sea í Hafnarfjarðarhöfn. Fjordvik á leið upp í Rolldock Sea. Ljósmynd Maggi Jóns 2019. Rolldock Sea, sem … Halda áfram að lesa Fjordvik tekið um borð í Rolldock Sea
Bylgja VE 75 kemur til Vestmannaeyja
2025. Bylgja VE 75. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Bylgja VE 75 var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Mattíhas Óskarsson útgerðarmann og skipstjóra árið 1992. Hún hefur alla tíð verið í eigu hans en fyrirtækið heitir Bylgja VE 75 ehf. Bylgja VE 75 er 33,74 m á lengd og 8,6 m á breidd. Hún mælist 277 … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75 kemur til Vestmannaeyja
Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur
2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Kristján HF 100 kom til Grindavíkur í fyrsta skipti í gærkveldi og að sjálfsögðu lá Jón Steinar fyrir honum. Útgerðarfélagið Kambur ehf. fékk Kristján HF 100 afhentan frá Trefjum í fyrrasumar. Hann hefur fiskað vel síðan veiðar hófust og landað hér og þar en eins og … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 kemur til Grindavíkur
Hásteinn ÁR 8 kemur til Grindavíkur
1751. Hásteinn ÁR 8 ex Örn VE 244. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Hér er Hásteinn ÁR 8 frá Stokkseyri að koma inn til Grindavíkur um kvöldmatarleitið í kvöldJón Steinar tók myndina og sagði á B&B að það hefði veri mokfiskerí hjá þeim. Afli dagsins var um 30 tonn sem fengust í tveimur köstum rétt vestan … Halda áfram að lesa Hásteinn ÁR 8 kemur til Grindavíkur
Bylgja VE 75
2025.Bylgja VE 75. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Hér sést togskipið Bylgja VE 75 koma til hafnar í gær en Ós ehf. hefur leigt skipið um tíma. Er það tilkomið vegna lengingar Þórunnars Sveinsdóttur VE 401 sem sagt var frá hér á síðunni á dögunum. Meira um Bylgjuna síðar. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Bylgja VE 75
Ný Cleopatra 36 til Álasunds í Noregi
Safir M-4-A. jósmynd Trefjar.is 2019. Nú á dögunum afhenti Bátasmiðjan Trefjar nýjan Cleopatra bát til Álasunds í Noregi. Kaupandi bátsins er Kjetil Måløy sem jafnframt verður skipstjóri á bátnum sem hefur hlotið nafnið Safir. Báturinn, sem hefur þegar hafið veiðar, er af gerðinni Cleopatra 36, 11metra langur og mælist 14 brúttótonn. Aðalvél bátsins er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 36 til Álasunds í Noregi
Wilson Main og Wilson Caen á Skjálfanda
Wilson Main og Wilson Caen á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Wilsonskipin Wilson Main og Wilson Caen lögðu af stað í siglingu yfir hafið í dag en þau hafa beðið ferðaveðurs sl. daga. Um Wilson Caen þarf ekki að fjölyrða nú enda stutt síðan það birtist mynd af því á síðunni. Wilson Main var smíðað … Halda áfram að lesa Wilson Main og Wilson Caen á Skjálfanda
Háey II ÞH 275
2757. Háey II ÞH 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Háey II ÞH 275 er hér að koma inn til Grindavíkur sl. vor. Háey II ÞH 275 er í eigu GPG Seafood á Húsavík og af gerðinni Víkingur 1200. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðjunni Samtak í Hafnarfirði árið 2007. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Háey II ÞH 275









