1009. Kristbjörg ÞH 44 ex Kristbjörg II ÞH 244. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjubátarnir Kristbjörg ÞH 44 frá Húsavík og Haförn SK 17 frá Sauðárkróki eru á þessum myndum sem teknar voru að mig minnir í Héraðsflóa. Þessir bátar tengjast að því leyti að Dögun hf. keypti Kristbjörgu ÞH 44 til Sauðárkróks árið 1997 og leysti … Halda áfram að lesa Kristbjörg ÞH 44 og Haförn SK 17
Nýja Vestmannaey VE 54 komin út úr húsi í Aukra
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Guðmundur Alfreðsson 2019. Hin nýja Vestmannaey VE 54 var tekin út úr húsi í morgun, máluð og fín. Skipið er smíðað í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. Á heimasíðu Síldarvinnslunnar segir að notaður sé vagn til að færa skipið út úr húsinu og mun hann flytja það út á … Halda áfram að lesa Nýja Vestmannaey VE 54 komin út úr húsi í Aukra
Máni ÞH 98 að draga grásleppunetin við Tjörnes
1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Máni ÞH 98 er hér að draga grásleppunetin við austanvert Tjörnes á sumardaginn fyrsta. Máni ÞH 98 var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988 og hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 og var lengi af gerður út frá Bolungarvík. Þjóðólfur var síðan gerður út frá … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98 að draga grásleppunetin við Tjörnes
Una SU 89
1237. Una SU 37 ex Leynir SU 89. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Una SU 89 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en báturinn var frá Eskifirði. Una SU 89 var smíðuð hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta sf. á Akureyri árið 1972 og mældist 16 brl. að stærð Báturinn var smíðaður fyrir Karl Hólm, Inga … Halda áfram að lesa Una SU 89
Óli á Stað GK 99 kemur til hafnar í Grindavík
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Línubáturinn Óli á Stað GK 99 kemur hér til hafnar í Grindvík á öðrum degi páska í ár. Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og mælist 29.95 BT að stærð. Það er … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99 kemur til hafnar í Grindavík
Sapphire II kom til Reykjavíkur í vikunni
Sapphire II MK-0360 ex Havstrand M-225-H. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Óskar Franz myndaði rússneska frystitogarann Sapphire II MK-360 þegar hann kom til hafnar í Reykjavík í vikunni. Togarinn hét upphaflega Havstrand M-225-H og var smíðaður í Brattvåg Skipsinnredning A/S í Brattvåg. Hann var afhentur í desember 1987 en stöðin í Brattvåg lét smíða skrokkinn hjá … Halda áfram að lesa Sapphire II kom til Reykjavíkur í vikunni
Fríða Dagmar ÍS 103
2817. Fríða Dagmar ÍS 103. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Bolvíski línubáturinn Fríða Dagmar ÍS 103 er á þessum myndum að koma inn til Grindavíkur undir kvöld í gær í suðaustan skítveðri eins og ljósmyndarinn orðaði það. Fríða Dagmar ÍS 103 er í eigu útgerðarfélagsins Salting ehf. og var smíðuð hjá bátasmiðjunni Trefjum árið 2012. Upphaflega … Halda áfram að lesa Fríða Dagmar ÍS 103
Haukaberg SH 20
1399. Haukaberg SH 20. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Haukaberg SH 20 frá Grundarfirði er hér á siglingu á Breiðafirði, sennilega á vetrarvertíðinni 1982 frekar en 1983. Í 16-17 tbl. Ægis 1974 sagði ma. svo frá: 11. október s.l afhenti Þorgeir & Ellert h.f. Akranesi nýtt 104 rúmlesta stálfiskiskip, smíðanúmer 30 hjá stöðinni. Skipið sem ber nafnið … Halda áfram að lesa Haukaberg SH 20
Aquamarine M-0272 frá Murmansk
Aquamarine M-272 ex Orcades Viking. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Rússneski togarinn Aquamarine M-272 kom til hafnar í Hafnarfirði í gærmorgun en Rússarnir eru að undirbúa karfavertíðina á Reykjaneshryggnum. Togarinn, sem er í eigu NOREBO útgerðarrisans, var smíðaður árið 1991 og er með heimahöfn í Murmansk. Smíði þessa skips hófst fyrir Færeyinga hjá P/f Skala Skipasmidja … Halda áfram að lesa Aquamarine M-0272 frá Murmansk
Skinney fyrir og eftir breytingar
2732. Skinney SF 20 fyrir breytingar. Ljósmynd Jón Steinar. Hér koma tvær myndir sem sýna Skinney SF 20 fyrir og eftir breytingar sem fram fóru í Póllandi en eins og fyrri færsla sýnir kom skipið til landsins í kvöld. 2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Gunnar Óli Sölvason 2019. Með því að smella á myndirnar er … Halda áfram að lesa Skinney fyrir og eftir breytingar









