1595. Frár VE 78 ex Frigg vE 41. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2022. Hér kemur togbáturinn Frár VE 78 til hafnar í Vestmannaeyjum á dögunum en Tryggvi Sigurðsson tók myndina. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður er út af Frá ehf. í Vestmannaeyjum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana … Halda áfram að lesa Frár VE 78
Margrét HF 20
259. Margrét HF 20 ex Margrét SK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Margrét HF 20 kemur hér að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni 2009 en hún var þá gerð út af Reddingu ehf. og var með heimahöfn í Sandgerði. Um bátinn má lesa nánar hér en hans síðasta nafn á íslenskri skipaskrá var Nord GK … Halda áfram að lesa Margrét HF 20
Mundi Sæm SF 1
1631. Mundi Sæm SF 1 ex Gæfa SF 2. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Mundi Sæm SF 1 frá Hornafirði kom norður fyrir land á úthafsrækju sumarið 2003 og hér lætur hann úr höfn á Húsavík. Miðós hf. gerði bátinn út en hann var með heimahöfn á Hornafirði rúman áratug. Báturinn hét upphaflega Fálkinn NS 325 … Halda áfram að lesa Mundi Sæm SF 1
Sæborg og Litlafell
1097. Sæborg ÞH 55 - 1165. Litlafell. Ljósmynd Pétur Jónasson. Hér gefur að líta Sæborgu ÞH 55 koma að landi á Húsavík og í baksýn er Litlafell, olíuskip SÍS og Olíufélagsins hf. að manúera við hafnargarðinn. Um Sæborgina, sem smíðuð var árið 1970 hjá Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri, má lesa hér en Litlafellið … Halda áfram að lesa Sæborg og Litlafell
Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling
2986. Mars RE 270 ex Sólborg RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Saltver í Reykjanesbæ hefur keypt Mars RE 270 af Útgerðarfélagi Reykjavíkur og mun hann leysa netabátinn Erling KE 140 af hólmi. Mars var smíðaður hjá Karstensens Skibsværft í Skagen í Danmörku árið 1988 og hét áður Sólborg RE 27. Báturinn, sem er 34 metrar … Halda áfram að lesa Saltver kaupir Mars sem fær nafnið Erling
Helgi Fló
93. Helgi Flóventsson ÞH 77. Ljósmynd Pétur Jónasson. Helgi Flóventsson ÞH 77 er hér á heimstími til Húsavíkur á sjöunda áratug síðustu aldar en hann var gerður út af Svan h/f á Húsavík. Báturinn var smíðaður fyrir Svan h/f í Risör í Noregi árið 1962 og kom í stað minni báts sem sökk um 4,5 … Halda áfram að lesa Helgi Fló
Halldór NS 302
2790. Halldór NS 302 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Halldór NS 302 kom til Húsavíkur fyrir helgi og voru þessar myndir af honum teknar um helgina. Halldór, sem gerður er út af GPG Seafood ehf., hét upphaflega Einar Hálfdáns ÍS 11 og er Cleopatra 38 frá árinu 2009. 2790. Halldór NS 302 … Halda áfram að lesa Halldór NS 302
Ziltborg við Bökugarðinn
IMO 9224142. Ziltborg við Bökugarðin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Flutningaskipið Ziltborg kom til Húsavíkur í gærkveldi þegar norðurljósin böðuðu Skjálfandaflóa með litadýrð sinni. Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl. Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og mælist … Halda áfram að lesa Ziltborg við Bökugarðinn
Vigri í slipp
2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Magnús Jónsson 2022. Frystitogarinn Vigri RE 71 hefur verið uppi í slipp í Reykjavík að undanförnu og nokkuð ljóst að hann kemur gjörbreyttur niður hvað lit varðar. Vigri RE 71var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Í dag er Brim … Halda áfram að lesa Vigri í slipp
Agla ÁR 79
2879. Agla ÁR 79. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2022. Handfærabáturinn Agla ÁR 79 sést á þessum myndum koma að landi í Grindavík í gær. Aflinn var um 400 kíló af vænum ufsa sem fékkst í Röstinni. Agla sem er gerð út af AAH ehf., var smíðuð hjá Mótun ehf. á Sauðárkróki árið 2016. Hún er … Halda áfram að lesa Agla ÁR 79









