
Flutningaskipið Ziltborg kom til Húsavíkur í gærkveldi þegar norðurljósin böðuðu Skjálfandaflóa með litadýrð sinni.
Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.
Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl.
Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og mælist 4,938 GT að stærð. Lengd þess er 118 metrar og breiddin 14 metrar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution