
Hafrún ÞH 144 var smíðuð hjá Gunnlaugi og Trausta á Akureyri árið 1971 og var 12 brl. að stærð.
Báturinn var smíðaður fyrir Bjarna Elíasson sem gerði hann út frá Húsavík í sjö ár en þá var Hafrún seld til Þórshafnar.
Þar hélt báturinn nafni sínu og númer og var á Þórshöfn þangað til yfir lauk en báturinn var tekinn af skipaskrá sumarið 1992.
Á vefnum aba.is segir að á þessari mynd sem Pétur Jónasson ljósmyndari á Húsavík tók hafi báturinn verið með 14,8 tonn af þorski sem fékkst í einu kasti við Langanes.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution