Helga TH 7

559. Helga TH 7. Ljósmynd úr einkasafni.

Helga TH 7 var smíðuð fyrir Hreifa hf. á Húsavík í Danmörku árið 1956 og var 55 brl. að stærð.

Í byrjun árs 1962 var báturinn seldur til Höfðakaupstaðar þar sem hann fékk nafnið Helga Björg HU 7. Sumarið 1965 skipti báturinn um eigendur og fékk nafnið Páll Jónsson HU 44.

Sumarið 1968 var báturinn seldur til vestmannaeyja þar sem hann fékk nafnið Þristur VE 6. Árið 1972 varð Þristur AK 120 en ári síðar aftur VE 6.

Árið 1980 fékk báturinnnafnið Sæbjörn ÁR 15 og það nafn bar hann þegar hann var tekinn af skipaskrá og brenndur árið 1982.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd