Skipavíkurbátar við bryggju á Húsavík

1105. Þorleifur EA 88 – 1420. Kristbjörg ÞH 44. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Hér má sjá tvo Skipavíkurbáta við bryggju á Húsavík um árið, sá rauði er Þorleifur EA 88 sem gerður var út frá Grímsey og heimabáturinn Kristbjörg ÞH 44.

Þorleifur hét upphaflega Jón Helgason ÁR 12 og var smíðaður fyrir Fræg hf. í Þorlákshöfn en Kristbjörg var smíðuð fyrir Korra hf. á Húsavík árið 1975.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd