2447. Ósk ÞH 54 ex Guðný NS 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Ósk ÞH 54 hét áður Guðný NS 7 og var keypt til Húsavíkur frá Seyðisfirði í ársbyrjun 2016. GPG Seafood ehf. keypti bátinn bátinn þaðan og færði aflaheimildir hans yfir á annan bát í eigu fyrirtækisins. Guðný er tæp 12 bt. að stærð af AWIgerð … Halda áfram að lesa Ósk ÞH 54
Flokkur: Smábátar
Addi Afi GK 302
2701. Addi Afi GK 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Addi afi GK 302 er hér á siglingu á Eyjafirði 25. febrúar árið 2006 en þarna var báturinn glænýr. Á fréttavef Morgunblaðsins mátti lesa þessa frétt sama dag: Sýndu Akureyringum Adda afa JE vélaverkstæði á Siglufirði hefur afhent nýjan fiskibát til nýs eiganda, Útgerðarfélags Íslands. Báturinn … Halda áfram að lesa Addi Afi GK 302
Óli á Stað GK 99
2842. Óli á Stað GK 99. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Óli á Stað GK 99 kemur hér að landi á Siglufirði í sumar en það er Stakkavík ehf. í Grindavík sem gerir hann út. Óli á Stað GK 99 var smíðaður á Akureyri, í Seiglu, og afhentur vorið 2017. Hann er 14,8 metra langur og … Halda áfram að lesa Óli á Stað GK 99
Indriði Kristins BA 751
2907. Indriði Kristins BA 751. Ljósmynd Jón Steinar. Jón Steinar tók þessa mynd af Indriða Kristins BA 751 í ölduróti þar sem hann var að koma til hafnar í Grindavík Indriði þessi hefur nú verið leystur af hólmi með nýrri og stærri Cleópötru sem fékk sama nafn en þessi var seldur til Suðureyrar þar sem … Halda áfram að lesa Indriði Kristins BA 751
Iða við bryggju á vetrarkveldi
1432. Iða ÞH 321 ex Von ÞH 54. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessa mynd af Iðu ÞH 321 tók ég sl. sunnudagskvöld þegar rofaði til eftir norðanhríð síðustu daga. Iða hét áður Von ÞH 54 og var smíðuð í Neskaupstað árið 1975. Báturinn er 6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13. Síðan … Halda áfram að lesa Iða við bryggju á vetrarkveldi
Máni ÞH 98
1920. Máni ÞH 98 ex Máni EA 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2016. Máni ÞH 98 var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1988 og hét upphaflega Þjóðólfur ÍS 86 og var lengi af gerður út frá Bolungarvík. Þjóðólfur var síðan gerður út frá Suðurnesjum undir þrem nöfnum, fyrst Gefjun KE 19, síðan Þorbjörn GK 109 og Máni … Halda áfram að lesa Máni ÞH 98
Vésteinn GK 88
2908. Vésteinn GK 88. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Vésteinn GK 88 bættist í flota Einhamars í Grindavík snemma á þess ári en fyrir gerði fyrirtækið út Auði Vésteins SU 88 og Gísla Súrsson GK 8. Bátarnir eru allir smíðaðir hjá Trefjum í Hafnarfirði af gerðinni Cleopatra 50. Búnir línubeitningarvélum. Þeir eru tæplega 30 brúttótonn og … Halda áfram að lesa Vésteinn GK 88
Hulda HF 27
2912. Hulda HF 27 ex Oddur á Nesi SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Línubáturinn Hulda HF 27 er hér að koma til hafnar á Siglufirði þann 13. júní sl. Hulda, sem er GK 17 í dag, hét áður Oddur á Nesi SI 76 og var báturinn smíðaður hjá Seiglu á Akureyri fyrir BG Nes … Halda áfram að lesa Hulda HF 27
Sólrún EA 151
2706. Sólrún EA 151 ex Tumi EA 84. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þegar Sólrún EA 151 kom úr sínum fyrsta róðri í sumar var ég staddur við Eyjafjörð og tók þessar myndir á Árskógssandi. Eins og kannski glöggir menn sjá er þetta gamla Sæunn Sæmundsdóttir ÁR 60 sem smíðuð var hjá Seiglu á Akureyri árið … Halda áfram að lesa Sólrún EA 151
Eskey ÓF 80
2905. Eskey ÓF 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Þessi mynd er síðan 19. ágúst sl. þegar línubáturinn Eskey ÓF 80 kom til hafnar á Siglufirði. Eskey var sjósett á Siglufirði í aprílmánuði 2016 en hún var smíðuð hjá Siglufjarðar-Seig fyrir Akraberg ehf. Skrokkur Eskeyjar var smíðaður hjá Seiglu á Akureyri og var 11 metra langur … Halda áfram að lesa Eskey ÓF 80









