Herborg HF 67

6429. Herborg HF 67 ex Eva HF 67. Ljósmynd Kristvin Már Þórsson 2021. Kristvin Már Þórsson tók þessa mynd af strandveiðibátnum Herborgu HF 67 á dögunum en skipstjórinn þar um borð er Húsvíkingurinn Hermundur Svansson. Nú búsettur í Hafnarfirði. Herborg hét upphaflega Árni Gunnlaugsson ÓF 15 og var smíðaður árið 1982 og hafði smíðanúmer 69 … Halda áfram að lesa Herborg HF 67

Hafrafell farið austur

2912. Hafrafell SU 65 ex Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar 2021. Þeim fækkar aðkomubátunum sem róið hafa frá suðvesturhorninu að undanförnu og mokfiskað. Hrygningarfiskurinn er nú genginn af slóðinni og fiskiríið dottið niður enda ekki að ástæðulausu að lokadagur vetrarvertíðar var hér áður fyrr 11. maí. Hafrafell SU 65 lét úr höfn í Grindavík í … Halda áfram að lesa Hafrafell farið austur

Skúmur RE 90

1151. Skúmur RE 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skúmur RE 90 var smíðaður fyrir Kristján Einarsson árið 1971 í Bátasmiðju Jóhanns L. Gíslasonar í Hafnarfirði.      Báturinn hét Skúmur alla tíð og með heimahöfn í Reykjavík. Hann var tekinn af skipaskrá í ársbyrjun 2010 en hafði síðast haffæri árið 2001. Heimild aba.is Skúmur var 10 brl. að … Halda áfram að lesa Skúmur RE 90

Útgerðarfélagið Blakknes ehf. fær nýjan 30 tonna Cleopatra 40BB bát

2999. Hulda GK 17. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Blakknes ehf í Sandgerði fékk á dögunum afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 40BB beitningavélarbáta frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Hulda var hönnuð í samstarfi við Ráðgarð ehf. Framkvæmdastjóri Blakkness er Sigurður Aðalsteinsson. Skipstjóri á bátnum Emanúel Þórður Magnússon. Nýi báturinn heitir Hulda GK 17. Báturinn er 12.5 metrar … Halda áfram að lesa Útgerðarfélagið Blakknes ehf. fær nýjan 30 tonna Cleopatra 40BB bát

Hulda GK 17 kom úr fyrsta róðri

2999. Hulda GK 17. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Línubáturinn Hulda GK 17 kom til hafnar í Grindavík úr sínum fyrsta róðri en báturinn er nýsmíði frá Trefjum í Hafnarfirði. Jón Steinar tók meðfylgjandi myndir þegar Hulda kom að landi og skrifar eftirfarandi á Báta og bryggjurölt: Báturinn reyndist vel í alla staði í þessum … Halda áfram að lesa Hulda GK 17 kom úr fyrsta róðri

Halldór afi GK 222

1546. Halldór afi GK 222 ex Frú Magnhildur GK 222. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Netabáturinn Halldór afi GK 222 kemur hér að landi í Keflavík þann 23. apríl sl. og Bergvík GK 22 fylgir í humátt á eftir. Báturinn, sem gerður er út af Maron ehf., var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. … Halda áfram að lesa Halldór afi GK 222

Smyrill kom að landi með skammtinn

6484. Smyrill ÞH 57 ex Sómi SH 163. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Smyrill ÞH 57 er einn þeirra straandveiðibáta sem róa frá Húsvík og voru þessar myndir teknar í dag þegar hann kom að landi. Það er Hörður Sigurgeirsson sem stendur að útgerðinni Fiskiskeri ehf. sem gerir Smyril út. Höddi var ánægður með róðurinn í … Halda áfram að lesa Smyrill kom að landi með skammtinn

Eiður Baldur EA 69

7050. Eiður Baldur EA 69 ex Raffi GK 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Strandveiðibáturinn Eiður Baldur EA 69 hefur róið frá Húsavík þessa fyrstu daga strandveiðitímabilsins sem hófst þann 2. maí sl. og voru þessar myndir teknar í dag. Eiður Baldur var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 1988 og hét upphaflega Gylfi KÓ 9. Hann … Halda áfram að lesa Eiður Baldur EA 69

Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík

2704. Bíldsey SH 65 ex Bíldsey II SH 63. Ljósmynd  Jón Steinar 2021. Bíldsey SH 65 kemur hér á landleið til Grindavíkur í gær en upphaflega hét báturinn Konni Júl GK 704. Hann var smíðaður hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Eigandi Hviða ehf. og heimahöfnin Garður.  Árið 2008 fékk báturinn nafnið Kiddi Lár GK … Halda áfram að lesa Bíldsey SH 65 kemur að landi í Grindavík