Björgunarskipið Gísli Jóns

2967. Gísli Jóns. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarskipið Gísli Jóns frá Ísafirði kom til Hafnarfjarðar um síðustu helgi og þessi mynd tekin þá. Gísli Jóns er eitt af björgunarskipum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og var keyptur frá Noregi árið 2019. Það var smíðað árið 1990. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Björgunarskipið Gísli Jóns →

Gunnbjörg frá Raufarhöfn

2623. Gunnbjörg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Björgunarskipið Gunnbjörg frá Raufarhöfn sést hér láta úr höfn á Húsavík í gærkveldi. Gunnbjörg er staðsett á Húsavík um tíma vegna bilunar í bát Björgunarsveitarinnar Garðars. Gunnbjörg var smíðuð í Englandi árið 1986 og er 40,73 BT að stærð. Með því að smella á myndina er hægt að skoða … Halda áfram að lesa Gunnbjörg frá Raufarhöfn →

Ronja Tind á Húsavík

IMO 9743801. Ronja Tind ex Oytind.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Brunnskipið Ronja Tind er á Húsavík í dag að taka seiði frá Rifósi og flytja austur á firði. Donnalaks var hér sömu erinda um helgina. Ronja Tind var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2015 og hét upphaflega Oytind. Ronja Tind er 70 metra langt … Halda áfram að lesa Ronja Tind á Húsavík →

Varðskipið Týr

1421. V/S Týr á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Varðskipið Týr kom til Húsavíkur síðdegis í dag og lagðist við Bökugarðinn og það ekki í fyrsta skipti. Spurning hvort þetta hafi verið í síðasta skipti. Týr var smíðaður í Danmörku og kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík sumarið 1975. Hér má lesa ágrip … Halda áfram að lesa Varðskipið Týr →

Arnarnes á Dýrafirði

2979. Arnarnes. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Hér siglir Arnarnes, þjónustubátur við laxeldi Arctic Sea Farm, inn Dýrafjörð á leið til hafnar á Þingeyri en myndirnar tók Jón Steinar Sæmundsson. Arnarnes var smíðað af Moen Marin Service AS árið 2018 og mælist 42 BT að stærð. 2979. Arnarnes. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2021. Með því … Halda áfram að lesa Arnarnes á Dýrafirði →

Ópal og Esja

Esja og Ópal koma til hafnar á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Seglskútan Esja og skonnortan Ópal koma hér til hafnar á Húsavík í síðustu viku en Ópal sigldi í samfloti við Esju frá Akureyri. Það er hópur kvenna sem kallar sig Seiglurnar siglir Esju í hringferð í kringum landið og létu þær úr höfn í Reykjavík 11. … Halda áfram að lesa Ópal og Esja →

Kleifabergið verður fljótandi hótel

1360. Kleifaberg RE 70 ex Kleifaberg ÓF 2. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Kleifabergið verður innan tíðar fljótandi hótel við norðausturströnd Grænlands fyrir hóp á vegum ástralsks námuvinnslufyrirtækis sem vinnur að rannsóknum þar í landi. Frá þessu segir í Fiskifréttum en þar kemur m.a fram: Kleifabergið, sem var smíðað í Póllandi 1974, hét áður Engey RE … Halda áfram að lesa Kleifabergið verður fljótandi hótel →

Bjarni Sæmundsson HF 30 – Myndasyrpa

1131. Bjarni Sæmundsson HF 30 ex RE 30. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Hafrannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson HF 30 kom til Húsavíkur í gær en skipið er í árlegum haustleiðangri Hafrannsóknarstofnunar.  Um Bjarna Sæmundsson er það að segja að skipið var smíðað í Þýskalandi árið 1970 og afhent Hafrannsóknastofnun í desember sama ár. Skipið er 56 metra langt … Halda áfram að lesa Bjarni Sæmundsson HF 30 – Myndasyrpa →