Herdís

2756. Herdís ex Jötunn. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2023. Hafnsögubáturinn Herdís er hér á siglingur fyrir utan Þorlákshöfn en eigandi bátsins er Þorlákshafnarhöfn. Báturinn hét upphaflega Jötunn og var smíðaður í Hollandi fyrir Faxaflóhafnir árið 2008. Herdís, sem er tæplega 96 BT að stærð, var keypt til Þorlákshafnar árið 2020. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Herdís →

Seifur og Aidaluna

2955. Seifur - IMO 9334868. Aida Luna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér koma myndir sem teknar voru fyrir viku síðan á Akureyri og sýna hafnsögubátinn Seif og farþegaskipið Aidaluna. Aidaluna er 69,203 GT að stærð og var smíðað í Þýskalandi árið 2009 . Lengd skipsins er 251,9 metrar og það er 37,6 metrar breitt. Skipið … Halda áfram að lesa Seifur og Aidaluna →

Lilja BA á Arnarfirði

3037. Lilja BA. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Lilja BA siglir hér frá Bíldudal og út á Arnarfjörðinn en þar eru fiskeldiskvíar sem báturinn þjónar. Fiskeldisfyrirtækið Arnarlax ehf. er eigandi bátsins sem smíðaður var árið 2020. Hann er tvíbytna, 14 metrar að lengd, og mælist 45,45 BT að stærð. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Lilja BA á Arnarfirði →

V/S Freyja og Gummi St.

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Varðskipið Freyja kom til hafnar á Húsavík nú undir kveld og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. Bátsmaðurinn á Freyju, Guðmundur St. Valdimarsson var á … Halda áfram að lesa V/S Freyja og Gummi St. →

Nýr Sigurvin kom til Siglufjarðar í dag

3024. Sigurvin kemur til Siglufjarðar í dag og gamli Sigurvin fylgir í humátt á eftir. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Sigurvin, kom til heimahafnar á Siglufirði í dag og tók Haukur Sigtryggur meðfylgjandi myndir við það tækifæri. Gamli Sigurvin fór til móts við þann nýja og fylgdi honum til hafnar en fjöldi fólks … Halda áfram að lesa Nýr Sigurvin kom til Siglufjarðar í dag →

Varðskipið Freyja

3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Jón Steinar tók þessar drónamyndir af varðskipinu Freyju í gær þegar skipið var á siglingu undan Stafnesi. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. 3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2023. … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja →

Fossá

2404. Fossá ÞH 362. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kúfiskveiðiskipið Fossá ÞH 362 frá Þórshöfn kemur hér að bryggju á Húsavík um árið. Fossá ÞH 362 var smíðuð í fyrir Hraðfrystistöðvar Þórshafnar og kom hún til heimahafnar á Þórshöfn í febrúarmánuði árið 2001. Skipið var smíðað í Huangpu-skipasmíðastöðinni í Gung Zhou í Kína. Í dag heitir skipið Grettir … Halda áfram að lesa Fossá →

Stapafell

1545. Stapafell. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Olíuskipið Stapafell kemur hér til Húsavíkur um árið, myndi halda 1999. Stapafell var smíðað fyrir SÍS og Olíufélagið hf. í Þýskalandi árið 1979 og var 1532 brl. að stærð. Heimahöfn þess var Keflavík. Stapafell var selt úr landi árið 2001 en þá var það í eigu Olíudreifingar ehf. í Reykjavík … Halda áfram að lesa Stapafell →

Varðskipið Þór

2769. V/S Þór við bryggju á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta varðskipið Þór við bryggju á Húsavík en það var smíðað í ASMAR skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og kom til heimahafnar í Reykjavík í október 2011.  Hér má lesa meira um varðskipið Þór og skoða fleiri myndir. Með því að … Halda áfram að lesa Varðskipið Þór →