Árni Friðriksson RE 100

1055. Árni Friðriksson RE 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson RE 100 var smíðaður í Englandi árið 1967 og þjónaði Hafrannsóknarstofnun Íslands fram til aldamóta þegar nýtt og stærra skip tók við hlutverki hans. Árni Friðriksson RE 100, sem er 449 brl. að stærð, var seldur til Færeyja árið 2001. Með því að smella … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson RE 100 →

Björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík

2292. Gunnar FRiðriksson í slipp á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hér gefur að líta björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík þann 11. október árið 2000. Ekki man ég nú hvaða erindi hann átti en samkvæmt samtímaheimildum áttu Ísfirðigar von á nýjum Gunnari Friðrikssyni til heimahafnar þann 30. september þetta haust. Og í fréttinni … Halda áfram að lesa Björgunarskipið Gunnar Friðriksson í slipp á Húsavík →

Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember

Nýja hafrannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir. Lj. Stjórnarráðið. Nýtt hafrannsóknaskip verður sjósett í skipasmíðastöðinni Astilleros Armón í Vigo á Spáni 15. desember nk. Við sjósetningu mun skipið formlega hljóta nafnið Þórunn Þórðardóttir og fær það einkennisstafina HF 300. Skipið mun draga nafn sitt af Þórunni Þórðardóttur sem var fyrsta íslenska konan með sérfræðimenntun í hafrannsóknum og var … Halda áfram að lesa Nýja hafrannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir sjósett 15. desember →

Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær

3025. Jóhannes Briem. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2023. Nýtt björgunarskip Landsbjargar, Jóhannes Briem, kom til heimahafnar í Reykjavík í gær. Báturinn var við hátíðlega athöfn afhentur Björg­un­ar­sveit­inni Ársæli í Reykja­vík. Jóhannes Briem er þriðja björgunarskipið sem smíðað er í skipa­smíðastöðinni Kewatec í Finn­landi fyrir Landsbjörgu. Fyrst í röðinni var Þór frá Vestmannaeyjum og síðan kom … Halda áfram að lesa Jóhannes Briem kom til heimahafnar í gær →

Björgunarbáturinn Stella komin heim

7870. Stella. Ljósmynd Guðmundur St. Valdimarsson 2023. Nýr björgunarbátur, Stella, kom til Flateyrar fyrir skömmu en hann er samskonar bátur og Villi Páls sem kom til Húsavíkur um svipað leyti. Bátarnir eru frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkar þeirra smíðaðir af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars.  Um smíðina má lesa nánar hér en upphaflega stóð … Halda áfram að lesa Björgunarbáturinn Stella komin heim →

Villi Páls á Skjálfanda

7865. Villi Páls á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Eins og kom fram hér á síðunni í gær kom björgunarskipið Villi Páls kom til heimahafnar á Húsavík síðdegis í gær en það er í eigu Björgunarsveitarinnar Garðars. Villi Páls er frá bátasmiðjunni Rafnari og var skrokkur hans smíðaður af tyrkneskum undirverktökum bátasmiðjunnar eftir teikningu Rafnars.  … Halda áfram að lesa Villi Páls á Skjálfanda →

Sigurvin á Skjálfanda

3024. Sigurvin á Skjálfanda í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björgunarskip Landsbjargar, Sigurvin, sigldi með Villa Páls nýjum báti Björgunarsveitarinnar Garðars yfir Skjálfanda í dag og að bryggju á Húsavík. Sigurvin kom til heimahafnar á Siglufirði í marsmánuði sl. en hann er einn þrettán báta sem Landsbjörg hyggst láta smíða fyrir sig í Finnlandi. Sigurvin er … Halda áfram að lesa Sigurvin á Skjálfanda →

Villi Páls kom til heimahafnar á Húsavík í dag

7865. Villi Páls á siglingu á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Björgunarskipið Villi Páls kom til heimahafnar á Húsavík kl. 17 í dag en það er í eigu Björgunarsveitarinnar Garðars. Meira síðar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Villi Páls kom til heimahafnar á Húsavík í dag →