993. Náttfari kemur úr hvalaskoðunarferð í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Norðursigling hóf á dögunum hvalaskoðunarvertíðina þetta árið og á þessari mynd sést Náttfari koma til hafnar í dag. Svona líka nýskveraður og fínn. Samkvæmt Fésbókarsíðu NS hefur vertíðin farið vel af stað og hnúfubakar sést í öllu ferðum til þessa. Náttfari hefur siglt með ferðamenn … Halda áfram að lesa Náttfari kemur úr hvalaskoðun í dag
Flokkur: Hvalaskoðunarbátar
Skonnortan Hildur
1354. Hildur í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Hér gefur að líta skonnortuna Hildi við flotbryggju í Húsavíkurhöfn. Myndin tekin í kvöld en veður var stillt og kalt. Og örlaði á norðurljósum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Skonnortan Hildur
Náttfari og glitskýin
993. Náttfari í Húsavíkurslipp. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þau voru fögur glitskýin í gær og ekkert að því að nota Náttfara í forgrunni þar sem hann stóð uppi í slippnum á Húsavík. Náttfari ber aldurinn vel en þann 20. febrúar nk. verða 57 ár síðan hann var sjósettur í Stykkishólmi hvar hann var smíðaður. Hann … Halda áfram að lesa Náttfari og glitskýin
Haukur á Skjálfanda
1292. Haukur ex Haukur ÍS 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Hvalaskoðunarbáturinn Haukur er hér á hvalaslóðum Skjálfanda í sumarlok árið 2000. Haukur var smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1973 og hét upphaflega Sigurður Baldvin KE 22. Sama ár var hann seldur vestur á firði þar sem hann fékk nafnið Haukur … Halda áfram að lesa Haukur á Skjálfanda
Steini Vigg á Skjálfanda
1452. Steini Vigg SI 110 ex Guðrún Jónsdóttir ÓF 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2010. Steini Vigg SI 110 er hér á siglinu á Skjálfanda í júlímánuði 2010 en þá var Norðursigling með hann á leigu um tíma. Þegar myndin var tekin var báturinn á leið til hafnar en hann ásamt fleir bátum NS sigldu til … Halda áfram að lesa Steini Vigg á Skjálfanda
Sylvía leggur upp í hvalaskoðun
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Sylvía leggur hér upp í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í dag en veðurblíða var við flóann fram eftir degi. Sylvía, sem er í eigu Gentle Giants, var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að … Halda áfram að lesa Sylvía leggur upp í hvalaskoðun
Hvalaskoðunarbáturinn Eldey
2910. Eldey ex M/S Norreborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Eldey kemur hér til hafnar í Reykjavík á dögunum en báturinn er í eigu hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar. Á vef fyrirtækisins segir m.a um Eldey: Eldey (áður þekkt sem M/S Sund Buss Erasmus) var byggð árið 1971 af Lindstölds Skips og Båtbyggeri A/S, Risør (Noregi) ásamt systurskipum … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbáturinn Eldey
Ópal á legunni
2851. Ópal á legunni í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Þessi mynd sem var tekin undir kvöld í dag sýnir skonnortuna Ópal þar sem hún liggur á legunni í Húsavíkurhöfn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in higher … Halda áfram að lesa Ópal á legunni
Sylvía leggur í ´ann
1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía leggur hér upp í hvalakoðunarferð á Skjálfanda síðdegis í dag. Sylvía, sem er í eigu Gentle Giants, var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Sylvía leggur í ´ann
Hólmasól
2922. Hólmasól. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Hólmasól frá Akureyri kemur hér úr ferð út á Eyjafjörðinn í gær en það er Akureyri Whale Watching ehf. sem gerir hann út. Smíðaður hjá Brodrene Aa Eikefjord A/S í Noregi árið 1988 en keyptur hingað til lands 2016. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Hólmasól









