Sænes EA 75

797. Sænes EA 75 ex Rikhard SK 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Netabáturinn Sænes EA 75 er hér á miðunum úti fyrir Norðurlandi á vetrarvertíð. Hann var gerður út frá Dalvík árin 1982-1987. Upphaflega hét báturinn Straumnes ÍS 240 og var smíðaður árið 1959 í A-Þýskalandi fyrir Kögur h/f á Ísafirði. Hann var 94 brl. … Halda áfram að lesa Sænes EA 75 →

Sturla farinn áleiðis til Litháen

1272. Sturla GK 124 ex Sturla GK 12. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Línuskipið Sturla GK 124 lét úr höfn í Grindavík í hinsta sinn í dag en skipið hefur verið selt til Litháen þar sem það fer í brotajárn. Skipið hét upphaflega Guðmundur RE 29 á íslenskri skipaskrá en hann var keyptur til landsins árið … Halda áfram að lesa Sturla farinn áleiðis til Litháen →

Vörður lagði úr höfn í gær

2962. Vörður ÞH 44. Ljósmynd Jón Steinar 2020. Vörður ÞH 44 lagði úr höfn frá Grindavík í gærmorgun og tók Jón Steinar þessa myndasyrpu þá. 2962. Vörður ÞH 44. Ljósmyndir Jón Steinar 2020. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Vörður lagði úr höfn í gær →

Svanur ÍS 214

206. Svanur ÍS 214. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Svanur ÍS 214 var smíðaður árið 1960 í Þýskalandi og var 101 brl. að stærð. Báturinn var smíðaður fyrir Álftfirðing h/f og var heimahöfn hans Súðavík. Svanur ÍS 214 sökk í róðri út af Ísafjarðardjúpi þann 29. janúar árið 1969. Sex manna áhöfn hans komst um borð … Halda áfram að lesa Svanur ÍS 214 →

Sæfari AK 55 á Siglufirði

208. Sæfari AK 55 ex Kópur EA 33. Ljósmynd Hannes Baldvinsson Siglufirði. Hér kemur mynd Hannesar Baldvinssonar á Siglufirði og sýnir hún vélbátinn Sæfara AK 55 frá Akranesi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sæfara ber fyrir augu lesenda síðunnar því áður hefur birst mynd af honum og var hún einnig tekin af Hannesi … Halda áfram að lesa Sæfari AK 55 á Siglufirði →

Þorkell Árnason GK 21

1231. Þorkell Árnason GK 21 ex Hafalda SU 155. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þorkell Árnason GK 21 úr Garðinum er á þessum myndum sem teknar voru á mismunandi tímum að koma til hafnar í Sandgerði en þaðan var hann lengstum gerður út. Báturinn var smíðaður í Dráttarbrautinni hf. í Neskaupsstað 1972 fyrir Hafölduna h/f á Eskifirði. … Halda áfram að lesa Þorkell Árnason GK 21 →

Dala Rafn VE 508

1379. Dala Rafn VE 508 ex Ölduljón VE 120. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Dala Rafn VE 508 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri 1974 og hafði fengið nafnið Kópanes BA 99 þegar hann var sjósettur. Báturinn var upphaflega smíðaður fyrir Einhamar hf. á Bíldudal en áður en til afhendingar kom seldi fyrirtækið bátinn til Mumma hf. … Halda áfram að lesa Dala Rafn VE 508 →